Vikan


Vikan - 21.12.1999, Blaðsíða 29

Vikan - 21.12.1999, Blaðsíða 29
því að bíða svolitla stund skal ég hjálpa þér, það á að loka eftir 10 mínútur." Mér fannst ég hafa himin hönd- um tekið, sótti lyfin hennar ömmu og beið þar til þessi jólaengill var búinn að læsa og kom til mín. Það er skemmst frá því að segja að hún leysti öll mín vandamál. Hún hjálpaði mér að velja fallega snyrti- tösku handa eldri systur minni og ofan í hana setti hún hárburstasett. Yngri systir mín fékk líka hár- burstasett, en í staðinn fyrir snyrtitöskuna valdi hún handa henni lítinn, tvöfald- an spegil sem gat staðið á borði. Hún pakkaði þessu fallega inn í jólapappír og setti í poka. „Var það eitt- hvað fleira?" spurði hún. Ég viðurkenndi að ég ætti enn eftir að kaupa gjöf handa mömmu og hún skildi strax að ég var að leggja fram beiðni um aðstoð. Við gengum saman um snyrtivörudeildina og eftir margar spurningar um útlit og hagi mömmu valdi stúlk- an ilmvatn og sápu í stíl, pakkaði því fallega inn í þvottaklút og lokaði með rauðum borða. Utan um allt setti stúlkan svo glæran pappír til að verja þvotta- klútinn þótt hann sæist í gegnum umbúðirnar. Allan tímann meðan hún pakkaði inn gjöfunum stóð ég og horfði á hendurnar á henni og mér fannst ég aldrei hafa séð svona fimar hendur áður. Sjaldan hef ég borgað með eins glöðu geði eins og þennan aðfangadag og ég sveif út úr apótekinu með lyfin hennar ömmu og gjaf- irnar. Jólin mín voru byrjuð. Amma kemur enn til hjálpar Ég beið spenntur eftir að sjá andlitin á stelpunum á að- fangadagskvöld og ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Þær urðu báðar himinlifandi yfir gjöfunum frá mér. En mest var samt gaman þegar mamma las utan á pakkann sinn. Hana hafði greinilega ekki grunað að hann væri frá mér og hún sá strax að ég hafði fengið hjálp. Hún spurði mig hver hefði hjálp- að mér, en ég gat auðvitað litlu svarað. Ég vissi ekki einu sinni hvað hún hét og ég vissi ekkert um hana. Mamma hætti að spyrja því hún hélt að þetta væri eitt- hvað viðkvæmt mál, en sagði þó að lokum: „Ég fæ kannski að sjá hana seinna." Ég gat svo sannarlega tekið undir þessa hugsun mömmu og stúlkan í apótekinu hvarf ekki frá mér þetta aðfanga- dagskvöld. Ég var algerlega með hana á heilanum og hún var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég vaknaði á jóladagsmorgun. Hún sveif um í huga mér allan daginn og á annan í jólum gerðist það sama. Amma kom í bæinn á annan í jólum og hún var mér af- skaplega þakklát fyrir að sækja lyfin sín. Hún sagði mér þó að hún hefði gleymt að biðja mig að kaupa fyrir sig exemkrem, en það gerði ekkert til, hún mundi kaupa það á Selfossi þegar hún kæmi heim. Ég hélt nú síður! Ég lofaði að fara í apótekið strax í bít- ið morguninn eftir til að kaupa kremið. Ég hafði einmitt verið að reyna að finna mér góða afsökun til að fara þangað aftur. Ég var mættur kortér yfir níu í apótekið og jólaengill- inn mundi svo sannarlega eftir mér. Hún spurði hvort ég hefði haft það gott um jólin og hvernig mæðgunum hefði líkað jólagjafirnar frá mér. Ég hafði búist við að verða feiminn við stúlkuna þegar ég sæi hana aftur, en svo var ekki. Mér fannst eins og ég hefði alltaf þekkt hana og mér fannst ekkert eðlilegra en að spyrja hana hvort ég mætti ekki sækja hana og skutla henni heim eftir vinnu og hún þáði það. Ég kom klukkan sex að sækja hana og stóð við dyrn- ar þegar hún kom út. Hún rétti mér höndina, kynnti sig og spurði mig hvað ég héti. Það var ekki fyrr en þá að ég gerði mér grein fyrir því að þessi dásamlega stúlka og ég vissum ekki neitt um hvort annað. Hún sagði mér að hún væri á bíl, en hún myndi þiggja að koma með mér í ísbúð þar sem væri hægt að setjast niður. Mér fannst þetta mjög skemmti- leg uppástunga því ég þekkti engan nema sjálfan mig sem fór í ísbúð um hávetur! Við sátum og horfðumst í augu í ísbúðinni í meira en klukkutíma og ég leiddi hana út. Ég var ástfanginn upp fyrir haus og ég komst að því þarna um kvöldið að hún var það líka. Eftir þetta notuðum við hvert tækifæri til að hittast og á þrettánda- kvöld fékk mamma að hitta stúlkuna sem hafði valið jólagjöfina hennar. Þær urðu strax mjög góðar vinkonur og eru það enn. Nákvæmlega ári eftir að við hittumst í fyrsta skipti gift- um við okkur. Við eignuð- umst litla dóttur nokkrum mánuðum síðar, en hún var skírð í höfðuðið á ömmu minni sem var örlagavaldur- inn í lífi okkar. Við eigum von á öðru langþráðu barni í vor. Jólin eru alltaf mikil hátíð á litla heimilinu okkar, þau eru ekki bara venjuleg jól heldur líka brúðkaupsaf- mælið okkar. í þau ár sem við höfum verið gift höfum við á hverjum jólum rifjað upp þessa skemmtilegu sögu. Ég hefði ekki viljað missa af þessu jólahreti á Hellisheið- inni hvað sem það kostaði. Lesandi segir Jóhönnu Harðardóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni meö okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lifi þínu? Þér er vel- komið að skrifa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. Ht‘imiíist.m”ih rr: Vikan - „Lífsrcynslnsaj’a", Scljavcgur 2, 101 Kcvkjavik. Nctfang: \ ikan@fnicli.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.