Vikan - 21.12.1999, Page 10
Mikki MÚS
Teiknimyndir eru eitt margra
furöuverka aldarinnar. Þekktasta
teiknimyndafígúra heims er án
efa Mikki Mús. Þessi hugrakka
og einlæga mús birtist fyrst á
teikniboröi Walt Disney þann 18.
nóvember 1928. Mikki hefur elst
vel og lítur unglega út miöað við
að vera kominn á áttræöisaldur. í
fyrstu var Mikki Mús eingöngu
teiknaður í svart/hvítu en um
miðbik aldarinnar leit hann út
eins og við þekkjum hann í dag.
Fyrsta teiknimyndin sem Mikki
kom fram í var „Steamboat
Wille". í fyrstu teikni-
myndunum um Mikka
var það Disney sjálfur
sem Ijáði Mikka rödd
sína en þegar fígúrun-
um fjölgaði tóku
aðrir leikarar
raddsetniningu
að sér.
Marilyn
Monroe
er kynþokkafyllsta
leikkona aldarinnar,
á því leikur enginn
vafi. Hún er persónugervingur
Hollywood heimsins, þar sem
peningar, sambönd og kyn-
þokki skipta mestu máli eða
eins og hún orðaði það sjálf:
„( Hollywood eru menn til-
búnir að greiða þúsund doli-
ara fyrir kossinn en einungis
fimmtíu sent fyrir sálina."
Frami hennar var ameríski
draumurinn í hnotskurn; fá-
tæka stúlkan sem lagði
heiminn að fótum sér. Milljón-
ir ungra stúlkna dreymir um
að feta í fótspor gyðjunnar.
Monroe fæddist sem
Norma Jean Mortenson en
tók síðar upp Monroe nafn-
ið úr móðurættinni. Hún var
mikill einstæðingur og ólst
upp á munaðarleysingjahælum
og hjá vinkonu móður sinnar.
Ljósmyndari nokkur uppgötvaði
fegurð hennar þar sem hún stóð
við færiband í verksmiðju á
stríðsárunum. Myndin af Monroe
birtist á 33 forsíðum og eftir það
lá leiðin upp á við í kvikmynda-
heiminum. Hún var óheppin í
einkalífinu, átti nokkur mis-
heppnuð hjónabönd að baki þeg-
ar hún lést og er einna þekktust
fyrir að hafa verið ástkona John
F. Kennedy á tímabili. Ótímabær
dauði hennar er mönnum hulin
ráðgáta. Aðdáendur hennar munu
sjálfsagt aldrei sætta sig við þá
opinberu skýringu að um sjálfs-
morð hafi verið að ræða.
Píllan
Það er með ólíkindum hvað
ein, pínulítil tafla getur breytt
miklu. P-pillan kom á markað í
kringum 1960.
Hún markaði
tímamót í
kyn-
lífs-
sögunni. Allt í einu gátu konur
farið að njóta kynlífs með
góðu móti án þess að eiga
það á hættu að verða
ófrískar. Á þessum tíma
voru fleiri tegundir getnað-
arvarna komnar á markað
en engin þeirra var eins ör-
ugg og þægileg í notkun.
Skótíska
aldarinnar
Litlir, stórir, þröngir, mjóir...
Skótískan gengur í hringi.
Allt frá því að við gengum í
sauðskinnsskóm hafa allar
gerðir af skóm verið í tísku.
Ekki alls fyrir löngu voru
þykkir og grófir skór það
flottasta en núna
er klumþaskóm
hent út í stórum stíl fyrir fíngerða
hælaskó.
Bítlarnir
Hljómsveitin The Beatles eða
Bítlarnir var stofnuð árið 1962 af
þeim George Harrison, Ringo
Starr, Paul McCartney og John
Lennon. Hljómsveitin varð til úr
annarri hljómsveit, The Qu-
arrymen, sem Paul McCartney og
John Lennon stofnuðu árið 1956.
Flestir þekkja frægðarsögu pilt-
anna og bítlaæðið sem fylgdi í
kjölfarið. Tónlist þeirra nýtur enn
mikill vinsælda og segja má að
hún teljist nú klassísk popptón-
list. Oft er talað um að í tónlist
Bítlanna hafi poppið risið hæst en
popptónlistin á
rætur sínar að
rekja til
djassins sem
er upprunninn
meðal blökku-
manna í
suður-
ríkj-
um Bandaríkjanna. Djassinn byrj-
ar að koma fram um aldamótin
síðustu og úr honum þróast síðan
margar aðrar tónlistarstefnur,
þeirra á meðal: Blús, rokk, popþ,
þopp, dixíland o. fl. Fyrsta djass-
platan sem kom út var Dixie Jazz
One Step með hljómsveitinni
Original Dixieland Jazz Band.
Rolling Stones
Ef poppið hefur risið hæst með
Bítlunum má segja að með Roll-
ing Stones hafi verið náð há-
punkti rokksins. Hljómsveitin var
stofnuð sama ár og Bítlarnir og
það voru þeir Keith Richards og
Mick Jagger sem lögðu grunninn.
Brian Jones, Charlie Watts og Bill
Wyman voru helstu lagahöfundar
ásamt hinum tveimur og árið
1964 varð smellurinn Time Is On
My Side vinsælt og virðist ekkert
lát á þeim vinsældum. Ótal frá-