Vikan


Vikan - 21.12.1999, Page 12

Vikan - 21.12.1999, Page 12
Nælonsokkar tóku viö af silki- sokkum og voru bæöi ódýrari og sterkari. Nælonskyrturnar komu á markað og sendu rafneista frá ungum mönnum til allra sem hættu sér of nálægt. Hag- kaupslopparnir voru ódrepandi flíkur úr næloni sem allar hús- mæður urðu að klæðast til hlífðar öðrum fötum við vinnu sína. Fljót- lega áttuðu menn sig þó á því að óblönduð gerviefni voru ekki að öllu leyti heppileg í klæðnað og þá var farið að vefa gerviefna- þráðinn saman við silki-, bómull- ar- eða línþræði. Úr því varð fatn- aður sem var endingarbetri en sá sem gerður var úr óblönduðum náttúruefnum. Lokahnykkur ald- arinnar í gerviefnaklæðnaði eru sennilega flísefnin sem eru að hluta úr efnum sem endurunnin eru úr áldósum. Teflon, plexigler og fleiri iðnaðarefni eru unnin á svipaðan máta og byggja á sama lögmáli og fjölamíðin. Æskudýrkun Mikil áhersla áfallegt og full- komið útlit setti sterkan svip á öldina. Áköf æskudýrkun endur- speglaðist í barnungum fyrirsæt- um og fljótlega fæddist hugtakið ofurfyrirsæta. Horaðar ofurfyrir- sætur lögðu línurnar í tískunni og unglingsstúlkur kepptust við að líkjast þessum hetjum samtím- ans. í kjölfarið varð lystarstol sí- fellt algengara og hulunni var svipt af þessum alvarlega átrösk- unarsjúkdómi. Cindy Crawford, Naomi Campell, Linda Evang- elista, Claudia Schiffer og Kate Moss voru fremstar í farabroddi sem helstu fyrirmyndirnar. Ofur- fyrirsætur fengu svimandi há laun fyrir að ganga eggjandi eftir sýn- ingarpöllum íklæddar nýjustu föt- um tískukónganna og æskan svalt heilu hungri til að líkjast þeim sem mest. Lýtalækningar Aukin áhersla á hinn fullkomna líkama hleypti af stað mikilli fjölgun lýtaaðgerða og er óhætt að telja að silíkonbrjóst hafi sett svip á öldina. Marilyn Monroe gaf tóninn með þrýstnum barmi sín- um en brjóstastækkanir urðu hægt að öðlast gegn smávegis peningaútlátum. Kókið Með fullri virðingu fyriröllum öðrum drykkjum þá leikur enginn vafi á að kókið (Coca Cola) er drykkur aldarinnar. Ýmsar sögur eru til um tilurð kóksins og það var haft eftir gömlum bandarísk- um bifvélavirkja að upphaflega hafi kókið verið framleitt sem ryðleysir á bíla en hafi ekki náð útbreiðslu sem slíkt. Ekki tekurVik- an ábyrgð á þessum orð- um, en vitað er að kók dugar vel til að hreinsa saltaf bílrúðum. Líklegri heimildir segja að kókið hafi upphaflega verið framleitt sem hressingar- lyf og virkað fínt sem slíkt, enda var notað í það Kókaín og Kólahnetur. En hvernig sem upphafið var, þá er kókið drykkur tuttugustu aldarinnar. Ýmis afbrigði hafa verið fram- leidd af þessum ágæta drykk s.s Cherry Coke og Diet Coke, en ekkert slær út gamla, góða kókið í glerflöskunni og þeir alhörðustu í kókdrykkjunni vilja ekkert ann- að. Bjallan Bílar hafa breytt lífi mannkyns- ins talsvert á öldinni. Með bílnum styttust allar vegalendir til muna og heimurinn „minnkaði". Það leið undraskammur tími frá því að fyrsti bíllinn var framleiddur og þar ^ til bílar ekki mjög algengar fyrr en á 8. áratugnum og hafa líklegast náð hámarki nú undir aldalok. Pamela Anderson rogaðist stolt um með risavaxin brjóst og lýtalæknar fengu nóg að starfa. Söngkonan Cher talaði opinberlega um það hve ánægð hún væri með líkama sinn en hann er að mestu endur- byggður með aðstoð lýtalækna. Fitusog, brjóstastækkanir, nef- breytingar og fjarlæging rifbeina í þeim tilgangi að fá mjórra mitti, þykir ekki lengur tiltökumál því öllum er víst frjálst að bæta það útlit sem þeir fengu í vöggugjöf. Þrýstnar varir, í formi silíkons, er 12 Vikan

x

Vikan

Saqqummersitap suussusaa:
Katersaatit:
Gegnir:
ISSN:
0042-6105
Oqaatsit:
Ukioqatigiiaat:
62
Assigiiaat ilaat:
2823
Aviisini allaaserineqarsimasut nalunaarsornikut:
1
Saqqummersinneqarpoq:
1938-2000
Iserfigineqarsinnaavoq piffissaq una tikillugu:
2000
Saqqummerfia:
Oqaaseq paasinnissutissaq:
Allaaserineqarnera:
Tímarit.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue: 42. Tölublað (21.12.1999)
https://timarit.is/issue/300725

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

42. Tölublað (21.12.1999)

Actions: