Vikan


Vikan - 21.12.1999, Side 46

Vikan - 21.12.1999, Side 46
m h f r það, sagði Yseulta biðjandi. Ég er hrædd um að ég hafi ýkt svolítið þegar ég sagðist kunna rælana. í sannleika sagt hef ég aldrei dansað þá nema í barnaafmælum. Móðir mín hafði mikla ánægju af þeim og pabbi og vinir hans létu sig hafa það að reyna að dansa við okk- ur! Ef þú ert skosk þá eru ræl- arnir í blóði þínu, sagði Ant- hony brosandi. Yseulta end- urgalt brosið. Einhvern veg- inn tókst honum að fá þetta til að hljóma eins og annað ævintýri. Á meðan á þessu samtali stóð var hertoginn að tala við móður sína. Fyrst sýndi hann henni bréfið frá mark- greifanum. Hertogaynjan gat ekki leynt undrun sinni og fyrirlitningu. Hvernig dirfist hann að vera svona óforskammaður? sagði hún reiðilega. Mér hefur alltaf þótt hann sérstaklega óvið- felldinn maður. Ég hef lengi vitað hversu óhamingjusöm Sophia vinkona mín er í hjónabandinu, þótt hún hafi aldrei sagt það berum orð- um. Hann gerir alla vega sitt besta til þess að gera vesal- ings stúlkunni lífið leitt, sagði hertoginn. Það var rétt ákvörðun að leyfa henni að fara með okkur, sagði móðir hans, í stað þess að senda hana til baka, eins og markgreifinn hefur örugglega vænst. Hann notar hana sem blóraböggul, sagði hertog- inn. Hann neyðir hana til þess að ganga í sorgarklæð- um að ástæðulausu. Hertogaynjan starði á hann. Ég trúi ekki mínum eigin eyrum! Ég er búinn að segja henni að hún eigi að reyna að njóta þess að vera í Skotlandi og taka þátt í dansleiknum. Heldur þú að þú gætir reynt að finna ein- hver föt á hana? Hún getur ómögulega verið klædd þessum gömlu lörfum. Ég er viss um að mér dett- ur eitthvað í hug, sagði her- togaynjan. Mér þykir fyrir því að hafa látið mér detta í hug að lafði Sarah væri verðugt konuefni. Ég get ekki ímyndað mér að þú getir hugsað þér að eignast markgreifann sem tengda- föður. Ég gæti aftur á móti vel hugsað mér að segja honum álit mitt á honum, sagði her- toginn. En með því væri ég að lúta jafn lágt og hann sjálfur. Við skulum dekra við Yseultu og vera góð við hana. Mér segir svo hugur að það ergi markgreifann meira en nokkuð annað. Ég skil hvað þú meinar, sagði hertogaynjan. En þú verður nú líka að veita hin- um stúlkunum athygli. Ertu búinn að tala við Beryl Woods? Eitt er alveg á hreinu, svaraði hertoginn, hún vill ekkert við mig tala! Hertogaynjan starði á hann. Hvernig dettur þér það í hug? Hún er búin að sitja með fýlusvip síðan hún kom um borð í lestina. Þegar ég reyndi að tala við hana sagðist hún vilja fá að vera í friði, færði sig aftar í vaginn og lokaði augunum. Hann sá að móðir hans var slegin og sagði: Vertu ró- leg, mamma, það liggur kannski betur á henni þegar Tæknlgaröl - Dunhaga 5-107 Reyk|avík Síml: 525 4468 - Fax: 552 880! - lnfo@vortex.ls H{>gff-Inni/alið í ofangreindu verði er uppsetningarhugbiinaður, innhringiaðgangur, ® eitt póstfang, 3Mb heimasíðusvœði, 160Mb gagnaflutningur/mán. til 01.01.2000 tMá Míiwn Internetaðgangur til 01.01.2000 á aðeins kr. 2000,- 46 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar: 42. Tölublað (21.12.1999)
https://timarit.is/issue/300725

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

42. Tölublað (21.12.1999)

Handlinger: