Vikan - 08.08.2000, Qupperneq 4
Kæri lesandi
smokkur. Við á ritstjórn höf-
um fengið fjölmargar sím-
hringingar þar sem okkur hef-
ttr verið þakkað fyrir að hafa
sent verjurnar út með blaðinu
ogfólk hefur lýst yfir ánœgju
sinni með að fordómar og van-
þekking gagnvart slíkum getn-
aðarvörnum séu úr sögunni.
Viðbrögðin glöddu okkurþví
okkur finnst ekki „við hœfi“
Fræðsla er
forvörn
að fólk láti lífið fyrir tepruskap
og vanþekkingu. Okkur finnst
heldur ekki „við hœfi“ að
unga fólkið okkar sé að smit-
ast af þrálátum, alvarlegum
kynsjúkdómum sem auðveld-
lega er hœgt að koma í vegfyr-
ir. Fólk á rétt á að vita um
þessa vá, hverjar séu smitleið-
irnar og hvernig megi koma í
vegfyrir að verða fórnarlömb
sjúkdómanna. Svo ekki sé
minnst á ótímabœrar þunganir
en um 1000 fóstureyðingar eru
framkvæmdar á ári á íslandi
ogfer þeim fjölgandi. Þetta er
hörmuleg staðreynd sem hœgt
vœri að koma í vegfyrir á
mjög einfaldan hátt með notk-
un smokks eða annarra getn-
aðarvarna. Fóstureyðingar eru
langtfrá því að vera sjálfsagð-
ur hlutur og œttu að vera al-
gjört neyðarúrrœði. Það er
skylda ábyrgra foreldra að
frœða börnin sín um ótíma-
bœrar þunganir og kynsjúk-
dóma, ekki síður en um skað-
semi reykinga, fíkniefna og
neyslu áfengis.
Feimni og blygðunarkennd
gagnvart notkun smokka er
fortíðardraugur sem löngu œtti
verið búið að kveða niður íþví
upplýsingasamfélagi sem við
búum í. Því miður örlarþó
enn á fordómum ogfeimni í
þessum málum og við getum
einungis barist gegn því með
frœðslu og opna umrœðu að
vopni.
Vikan - ábyrgt blað.
Hrund Hauksdóttir, ritstjóri
r r
y- ^ 9 /L m'*' *í'» W Á
Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir,
vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, sími: 515 5500
fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson.
Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðviksson, simi: 515 5515.
Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, sími: 515 5512.
Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily
Magnúsdóttir, Guðriður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigríður
Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is.
Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrímsson.
Verð í lausasölu 459 kr. Verð i áskrift ef greitt er með greiðslukorti
344 kr. á eintak. Ef greitt er með giróseðli 390 kr. á eintak.
Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið í Prentsmiðjunni
Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
Áskriftarsími:
515 5555