Vikan


Vikan - 08.08.2000, Side 7

Vikan - 08.08.2000, Side 7
fjölskyldumeðlimi sem þarf að sinna,“ segir Ragnhildur. Engar patentlausnir til En hvernig geta vinnustaðir komið til móts við mismunandi þarfir fjölskyldna? Ragnhildur segir að í öllum verkefnum og könnunum sem hún hafi kynnt sér sé niðurstaðan sú að það sé ekki til nein ein leið sem allir vinnustaðir geti farið. „Vinnu- staðir eru ólíkir og hafa mismun- andi þarfir rétt eins og fjölskyld- an. Það verður því hver vinnu- staður að skoða sínar þarfir, starfsmannahópinn og vinnu- staðamenninguna og hvernig hægt sé að móta fjölskylduvæna starfsmannastefnu. Það fer auð- vitað mjög eftir vinnustaðnum og eðli þess starfs sem um er að ræða en helstu óskir starfsmanna eru yfirleitt að fá að hafa meira að segja um vinnutímann, að vinn- an sé betur skipulögð og að möguleiki sé á að vinna heima þegar þess sé kostur og þurfi með. Vinnustaðamenning er einnig misfjölskylduvæn. Sums staðar þykir ekkert tiltökumál þó starfsmaður sé heima t.d. vegna veikinda barna en annars staðar er það litið hornauga, sérstaklega ef karlmenn eiga í hlut, þó að þessi réttindi séu bundin í kjara- samningum. Fólk nefnir því gjarnan að vinnustaðamenning- in og viðhorfin á vinnustað mættu vera fjölskylduvænni. Sum fyrirtæki halda t.d. reglu- lega fundi utan dagvinnutíma og það getur skapað streitu og álag á starfsmann sem er með barn eða börn því hann getur þurft að útvega pössun eftir að leikskóla lýkur. Atvinnurekendur hugsa ef til vill ekki út í þetta og reikna bara með að hver og einn starfs- maður leysi þetta vandamál heima fyrir en fjölskylduvænn vinnustaður myndi finna leið til þess að halda fundi á dagvinnu- tíma,“ segir Ragnhildur. Nú er yngsta heimasætan, Hólmfríður vöknuð af hádegisblundi sínum og vill ólm taka þátt í þessari um- ræðu sem snertir hana rétt eins og öll önnur börn. Hún babblar heilmikið, tekur oft orðið af mömmu sinni og brosir sínu blíð- asta. Ýmis Ijon í veginum Getur ný tækni eins og netið skapað möguleika á sveigjanlegri vinnutíma? „Tæknin hefur auð- vitað gert það að miklu leyti,“ segir Ragnhildur, „en maður sér Jafnrcttismál hafa ávallt vcrið Ragnhildi hnglcikin og hún hef- ur lagt sitt af niörkum í þeirri baráttu. Ragnhildur hcfur að iindanförnu staðið í striingu frainini fyrir dóni stóluin landsins og scgir aö það hafi veriö athyglisverð lífsrcynsla. að á þeim vinnustöðum þar sem fólk fær tölvu með sér heim þá eru jafnframt að aukast kröfur á starfsmenn. Þeir losna aldrei við vinnuna. Þú átt jafnvel að vinna heima þó að þú sért með barnið þitt veikt og svo framvegis. Það er ekki endilega það sem átt er við þegar rætt er um fjölskyldu- væna vinnustaði. Þegar gera á vinnustaðinn fjölskylduvænni verða stjórnendur fyrirtækja í fyrsta lagi að vilja það, því næst að setjast niður með starfsmönn- um sínum og skoða hvernig stað- an er hjá þeim og spyrja sig spurninga eins og hvaða þarfir starfsmannahópurinn hafi, hvernig hægt sé að koma til móts við þessar þarfir og hvernig and- inn sé á vinnustaðnum. Það eru ýmis ljón í veginum," segir hún.“Stundum eru yfir- menn ekki tilbúnir að koma til móts við þessar þarfir en oft eru hinir starfsmennirnir það ekki heldur. Sem dæmi má nefna mið- aldra starfsmenn sem unnu í þessu vinnuumhverfi þegar þeir voru með lítil börn og þurftu að leggja ýmislegt á sig og finnst að ungu starfsmennirnir geti alveg gert það líka. Það sér ef til vill enginn í fljótu bragði hvernig fjölskylduvæn stefna getur gagn- ast þeim því eins og ég var að tala um áðan þá hefur fjölskyldan verið skilgreind svo þröngt. All- ar fjölskyldur hafa auðvitað þarf- ir, þær eru aðeins ólíkar eftir tímabilum í lífi fólks. Með fjöl- skylduvænum vinnustöðum er verið að tala um að fólk eigi sér líf eftir vinnu, að það komi ekki svo úrvinda heim að það geti ekki annað gert en hent sér upp í sófa og glápt á sjónvarpið." Ragnhildur segir að sér finn- ist sem hér á landi ríki það við- horf að fólk eigi ekki að koma með vandamál sín í vinnuna. „Andinn á vinnustaðnum skipt- ir auðvitað miklu máli. Mörgum finnst að fólk eigi bara að vinna vinnuna sína og að það komi eng- um við hvernig málin séu leyst heima fyrir. Þess eru dæmi að fólk nýti sér ekki lögbundin rétt- indi í kjarasamningum eins og veikindarétt og veikindadaga vegna barna þar sem viðhorfin á vinnustaðnum séu því svo fjand- samleg. Hjá stéttarfélögum ríkir einnig svolítil hræðsla hvað varð- ar tilhliðranir á vinnutíma. Sem dæmi má nefna að ef starfsmað- urermorgunhaniogkýs aðhefja sinn átta stunda vinnudag klukk- an sex að morgni og vera þannig

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.