Vikan - 08.08.2000, Side 10
Um þessar mundir er Ósk Úskarsdóttir að leggja síðustu hönd á flórða hljóm-
disk sinn. Þrátt fyrir prjá hljómdiska er nafn Óskar ekki á allra uörum en piötur
hennar eru til á flestum útuarpsstöðuum. Um daginn hijómaði eitt iaga hennar í
Ríkissjónuarpinu meðan lokamyndin uar á skjánum. Þar átti lagið mjög uel uið
fallega mynd af íslensku landsiagí sem tekin uar að sumri tíi. Hún segir að pað
sé í ualdi háttagerðarmanna huort heir spili tónlistina hennar en bar sem hún
sé sjálf útgefandi hafi hún engan bakhjarl til að fylgja plötunum eftir. Tónlistar-
sköpunin sé sprottin af innri hörf og hafi lítið með sókn í frægð að gera.
Reyndar finnist henni ekki eftirsóknaruert að tilheyra hópi beirra umtöluðu.
Hennar uerkefni sé fyrst og fremst fólgið í þuí að ala upp börnin sín þrjú og
reyna að koma þeim til manns.
Ósk Óskarsdótt-
ir tónlistarmaóur
hefur ”elió út
þrjár hljóinpliit-
ur sii fjóróa
er í vinnshi.
-O
■o
cn
03 ^
SZ -o
‘O -o
V)
. O)
•< •<
03 co
-O
■O
Fjórða plata Óskar Ósk-
arsdóttur er nokkuð
ólík hinum fyrri. Fyrsta
platan hennar var jóla-
platan „Með ósk um gleðileg
jól“, önnur hét „Óskin“, en meg-
inþema hennar er vorið, og
þriðja platan „Draumur hjarð-
sveinsins“ fjallaði um haustið.
Það er ekki auðvelt að lýsa tón-
list Óskar því hún vekur margs
konar hughrif. Jólaplatan, sem
fjallar auðvitað um jólasveina,
Grýlu og hennar hyski, hefur takt
sem rninnir á gamlan íslenskan
kveðskap. Börn, sem jafnvel
skilja ekki textana, ná taktinum
alveg um leið.
„Það hefur verið sagt um jóla-
plötuna að hún sé dálítið forn
sem mér finnst alveg ágætt því
textarnir eru flestir í þeim anda,“
segir Ósk. Hinar tvær plöturnar
eru í allt öðrum anda sem helst
má líkj a við austræn áhrif, j afnvel
arabísk á köflum. Rödd Óskar er
líka sérstök, svolítið hrjúf, og
minnir að nokkru leyti á rödd
Patti Smith sem var vinsæl hér á
árum áður.
Á nýju plötunni, sem heitir
„Silent Journey" og kemur út
innan skamms, kveður við meiri
rokktón en áður og að þessu sinni
eru textarnir allir á ensku.
„Fram til þessa hef ég ein-
göngu gefið út lög sem ég hef
samið við íslensk ljóð sem sum-
um hefur þótt nokkuð þjóðleg en
ég hef alltaf haft gaman af ís-
lenskum sönglögum. Síðan ég
man eftir mér hefur pabbi sung-
ið með karlakórnum Fóstbræðr-
um og ég fékk þetta beint í æð
alla daga því hann var alltaf
syngjandi. Rokktakturinn er mér
líka nánast í blóð borinn því
Ómar bróðir var í rokkbandi
þegar ég var stelpa. Hann var ið-
inn við að koma með góðar
hljómplötur heim og ég féll í stafi
yfir tónlist Jimi Hendrix og
gömlu Bowie plötunum. Því er
það bara eðlilegt framhald að
fara yfir í þá tónlist. Sum lögin á
„Silent Journey“ samdi ég og lét
hljóðrita þegar ég var aðeins
yngri. Ég hef samið lög síðan ég
var unglingur og á orðið góðan
slatta af melódíum.“segir Ósk og
brosir. Ensku textarnir eru flest-
ir eftir fyrrverandi eiginmann
Óskar og föður barnanna henn-
ar, Laurie Driver, sem er enskur.
Tvær íslenskar konur, Guðrún
Brynja Bernharðsdóttir og Sig-
ríður Sæmundsdóttir, eiga svo sitt
ljóðið hvor. Ósk og Laurie störf-
uðu saman í hljómsveitum í byrj-
un níunda áratugarins en hann
hafði áður verið í einni frum-
herjasveit pönksins í Bretlandi
'76-’78 sem hét The Adverts.
Þetta var fyrsta pönkhljómsveit-
in sem náði lagi inn á Top 10 þar
í landi sem hét Looking through
Gary Gilmors eyes. Hljómsveit-
irnar sem þau stofnuðu saman
hétu Út úr blánum og Frumskóg-
ar-Edda (Jungle Hilton).
„Þessar hljómsveitir voru mjög
rokkaðar og spiluðu eingöngu
frumsamið efni. Það var æft mik-
ið í marga mánuði en sjaldan spil-
að opinberlega. Hljómsveitir
sem eru bara með eigið efni hafa
alltaf átt frekar erfitt uppdráttar
íReykjavík. Fyrra bandið spilaði
þrisvar opinberlega og sú síðari á
fyrstu Óháðu listahátíðinni og á
hamborgarastað uppi á velli áður
en það lagði upp laupana," segir
Ósk. Hún kynntist Laurie í
Amsterdam og þaðan fluttu þau
saman til London eftir viðkomu
í nokkrum frystihúsum hér á
Fróni.
„Frá Bretlandi fluttum við til
Chicago og þar eignuðumst við
eldri strákinn sem heitir Hunter.
Eftir eins og hálfs árs dvöl í
Bandaríkjunum fluttum við aft-
ur til Bretlands og í Brighton
fæddist strákur númer tvö, Jósef.
Ári síðar komum við alkomin til
íslands og búmm, ég varð ólétt í
þriðja sinn á þremur árum. Anna
Lucy kom síðust í heiminn,
akkúrat á afmælisdaginn minn.
Skömmu síðar skildum við, ég og
breski trommarinn!“ segir Ósk.
Þar með var hún orðin einstæð
móðir þriggja barna sem núna
eru tíu, tólf og þrettán ára. Börn-
in hennar skipta hana meira máli
en tónlistarsköpunin. Anna Lucy
söng með mömmu sinni á
þriðju plötunni en að öðru leyti
hafa þau ekki sinnt tónlistinni
nema sem áheyrendur.
„Ég hef ekki haldið tónlist að
þeim og myndi heldur letja þau
til að leggja út á þá braut en ég
myndi aldrei stöðva þau í því sem
10
Vikan