Vikan


Vikan - 08.08.2000, Side 11

Vikan - 08.08.2000, Side 11
á mér að halda. Það er frekar stutt síðan ég hætti að spila og syngja þau í svefn. Allt í einu eitt kvöldið vildi Hunter ekki heyra meir og ég varð mjög sár og fékk sterka höfnunartilfinningu. Næsta kvöld þegar Jósef bað um tónlistaruppákomu kom í ljós að þeim fyrrnefnda þótti tónlistin of sorgleg," segir Osk hlæjandi. „Hins vegar kemur það mér ekk- ert á óvart að lögin beri með sér trega því það er einna helst á til- finningaþrungnum stundum sem ég hef mesta þörf fyrir að hverfa inn í tónlistarsköpunina, það huggar mig.“ íslensku lögin hefur Ósk samið við ljóð ýmissa skálda. A jóla- disknum voru meðal annars Ijóð eftir Jóhannes úr Kötlum og Grím Thomsen. Á haust- og vor- diskunum sótti hún töluvert í ljóð Jakobínu Johnson. „Eg keypti ljóðabók hennar, Kertaljós, á bókamarkaði í Perlunni fyrir nokkrum árum og heillaðist mjög. Þar er þessi söknður sem ég þekki svo vel sjálf. Það er jú alltaf eitthvað sem maður saknar í lífinu og ekki síst þegar fósturjörðin er víðs fjarri. Jakobína fæddist í Aðaldalnum árið 1883 og flutti til Vesturheims fimm ára að aldri. Hún var iðin við að kynna íslenska ljóðlist í Bandaríkjunum. Hún þýddi m.a. ljóð Stephans G. Stephanssonar áensku. JakobínaIéstáriðl974. Ég komst nýlega í netsamband við sonarson hennar, Eric John- son sem býr í Kaliforníu, og sendi honum hljómdiskana. Hann var mjög ánægður með það að ein- hver Islendingur sýndi ljóðum ömmu hans áhuga og bað mig að senda sér fleiri diska fyrir hina af- komendurna. Nú er hann að læra íslensku og er að vinna í því að þýða ljóðin hennar á ensku.“ þau vildu gera. Mér finnst gam- an að hlusta á tónlistina sem þau eru að hlusta á og tjútta við lög Limp Bizkit og Cypress Hill. Mér finnst skemmtilegt að fylgjast með því hvernig sá elsti er far- inn að hafa gaman af böndum sem ég hafði gaman af fyrir nokkrum árum, s.s. Nirvana og Sonic Youth. Þetta eru bönd sem eru mjög ,,inn“ hjá þeim núna ásamt Metallica sem líka er eld- gamalt band,“ segir Ósk um tón- listarsmekk barnanna. Reyndar lærðu þau á flautu í Waldorfskól- anum sem þau voru nemendur í. „í Waldorfskólanum er börn- unum kennt mjög mikið í gegn- um tónlist og myndlist og þeirra hugmyndafræði gengur út á það að hausinn sé ekki bara í skóla heldur allur líkaminn. Krökkun- um er kennt að lesa í gegnum hreyfilist og ég var svo heppin að kynnast þessu sjálf af því að, Rósa Helgadóttir, sem kenndi hreyfilist, bað mig að spila fyrir sigíkennslustundum. Húnsagði mér að Rudolf Steiner, sá sem kom með hugmyndirnar sem notaðar eru í Waldorfskólunum, hefði gert vísindalegar rannsókn- ir í sambandi við hreyfilistina þar sem hver stafur fékk hreyfingu sem líkir eftir hreyfingunni sem myndast í kokinu þegar viðkom- andi stafur er sagður. Það var hrein unun að horfa á Rósu „hreyfa" heilu ljóðin eftir þessu kerfi,“ segir Ósk. En hvernig fer barnauppeldi og tónlistarsköpun saman? Tog- ar þetta ekki hvort í annað? „Mér þykir þetta tvennt fara mjög vel saman. Ég sit heima við og vinn í tónlistinni og er því til staðar fyrir þau þegar þau þurfa Píanóið er í stofunni en upptöku- stúdíóið er í vaskahúsinu. Osk með börnunum sínum þremur. Hunter er 13 ára, Jósef er 12 ára og yngst er Anna Lucy, 10 ára. Heimilisiðnaður í bvotta- húsinu Öll tónlist Óskar er heimaunn- in í orðsins fyllstu merkingu. Hún semur heima á píanóið, leikur á mörg hljóðfæri í lögum sínum sem tekin eru upp í vaskahúsinu. Þar gat hún innréttað lítið stúd- íó með því að setja þvottavélina á baðið. „Það hefur komið fyrir að ég hafi tekið upp söng inni á klósetti þegar umferðin og lætin eru of mikil útifyrir,“segir Ósk og er greinilega ekki að grínast. Upp- tökutækin á hún sjálf en hún fór á tvö hljóðupptökunámskeið og með reynslunni hefur hún lært að hljóðblanda. Þótt hún leiki sjálf á mörg hljóðfæri, svo sem öll hljómborð, þverflautu, harm- oníku og einstaka slagverk, kall- ar hún aðra hljóðfæraleikara til vinnu. „Ég kann vinnukonugripin á gítar en annars get ég ekki leik- ið á nein strengjahljóðfæri og fæ því aðstoð frá öðrum. Ég hef ver- ið svo heppin að þeir hljóðfæra- leikarar hafa annaðhvort stillt Vikan 11

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.