Vikan


Vikan - 08.08.2000, Síða 24

Vikan - 08.08.2000, Síða 24
Að læra að leika Gunnhildur Sigurðardóttir, Anna Jeppesen og Sigríður Karlsdóttír sitja í skólanefnd Bandalags íslenskra leíkfé- laga. Bandalagið, sem er landssamtök áhugaleikfé- laga á íslandi, hefur frá ár- ínu 1997 rekið leiklistar- skóla með hað að markmiðí að gera áhugafólki kleift að afla sér menntunar í listinni og skapa huí aðstöðu til að horskast í faglegu tilliti. Gunnhíldur, Anna og Sigríður hafa mótað og haldið utan um leiklistarskólann frá upphafi og segja má að hann sé hálfgert afkvæmi hremenninganna. „Skólanefndin" virðist vera vel þekkt fyrirbæri innan Bandalags íslenskra leikfé- laga enda hefur hún unnið að- dáunarvert og mikilvægt starf fyrir áhugafólk um leiklist á íslandi. Gunnhildur, Anna og Sigríður hafa lagt mikinn tíma og mikinn metnað í það starf sem þær hafa innt af hendi og er afraksturinn vinsæll leik- listarskóli með fjölbreyttum, þaulhugsuðum og vel skipu- lögðum námskeiðum fyrir áhugaleikara sem og tækni- fólk hjá áhugaleikfélögum. í þau þrjú ár sem skólinn hef- ur verið starfræktur hefur námskeiðahald farið fram á Húsabrekku í Svarfaðardal en tækninámskeið hafa einnig verið haldin í Kópa- vogi. Skólinn er starfræktur í júní og ágúst en í ár eru nám- skeið eingöngu í ágústmánuði vegna Leiklistarhátíðar Bandalags íslenskra leikfé- laga sem haldin var á Akur- eyri í júní. A hverju sumri eyða Gunn- hildur, Anna og Sigríður hluta af sumarfríinu sínu í skólastarfið. Anna hefur þó minni tök á að dvelja í Húsa- brekku vegna vinnu sinnar, en Gunnhildur og Sigríður, titlaðar skólastýrur, sjá um reksturinn og að allt gangi snurðulaust fyrir sig þessa tíu daga sem námskeiðin standa yfir. Huer er „skólanefndín “P En hvernig tengjast þre- menningarnir leiklistinni og hvað fær þær til að eyða svona miklum tíma í þetta áhuga- mál? Anna er fyrst til svars: „Ég bjó á Húsavík í fjölda- mörg ár og tengdist leiklist- inni allan tímann sem ég var þar. Síðan fór ég suður í nám og aftur út í framhaldsnám í kennslufræðilegri leiklist. Ég er sem sagt búin að gera áhugamálið mitt að atvinnu í dag en ég vinn við það að kenna kennurum að nota leiklist í kennslu. Ég er í hálfu starfi við grunnskóla og kenni 8. bekk en þar geri ég svolitl- ar tilraunir með að nota leik- list í kennslu og starfa með kennurum. Það tengist hálfu starfi við Kennaraháskóla Is- lands þar sem ég kenni al- menna kennslufræði, og blanda hana leikrænni tján- ingu, ásamtþvíaðéghefver- ið með námskeið í leikrænni tjáningu í kennslu.“ Þegar Anna flutti frá Húsavík vildi hún ekki slíta tengslin við Bandalag íslenskra leikfélaga og hélt áfram að sækja banda- lagsþing. Þegar umræðan fór af stað fyrir fimm árum um að setja á stofn leiklistarskóla á vegum bandalagsins var það eitthvað fyrir áhugasvið Önnu og svo fór að hún, ásamt Gunnhildi og Sigríði, var kosin í skólanefndina. „Ég á mér ekki jafn langa sögu og Anna þegar kemur að leiklistinni," segir Gunn- hildur. „Það eru ein 16 ár síð- an ég datt fyrir tilviljun inn í starf Leikfélags Mosfells- sveitar og ég hef starfað með því síðan við öll möguleg störf. Annars er ég grunn- skólakennari og nota þetta áhugamál mitt mikið í kennsl- unni þar sem ég leita gjarnan í smiðju Önnu. Ég kenni líka leiklist og framsögn sem val- grein í 9. og 10. bekk.“ Sig- ríður brosir þegar talið berst að henni. „Ég nota leiklistina ekki mikið við mína vinnu þar sem ég er tanntæknir.“ Gunn- hildur og Anna hlæja að henni. „Mín saga í leiklistinni er svipuð og Gunnhildar. Ég gekk í Leikfélag Selfoss 1971 og hef gert allt í leikfélaginu, frá því að mála og vera for- maður. Ég fór að sækja bandalagsþing sem formað- ur leikfélagsins, ég sat lengi í stjórn þess en í dag vinn ég ekki mikið með leikfélaginu mínu. Bandalagið hefur geng- ið fyrir, ég er í varastjórn þess og í skólanefndinni og starf- ið þar tekur mikinn tíma.“ Skóli fyrir alla Bandalag íslenskra leikfé- laga hefur starfrækt leiklistar- og tækninámskeið um margra ára skeið og þegar skóla- nefndin var kosin hafði verið uppi umræða um það að skipuleggja þessi námskeið betur. Gunnhildur, Anna og Sigríður voru skólanefndin sem framkvæmdi. Þær kynntu sér málin niður í kjöl- inn, skoðuðu námskeiðin í samhengi sem og það hvern- ig endurmenntun er háttað. Ut frá því byggðu þær upp hugmyndir sem þær báru undir bandalagsþing, félag- arnir komu með tillögur og þannig mótuðust hugmynd- irnar smám saman um mark- mið hvers námskeiðs fyrir sig. Námskeiðin eru þannig upp byggð að í þeim er ákveðinn stígandi. Grunnámskeið eru fyrir leikara, leikstjóra og tæknifólk og upp frá því fram- haldsnámskeið 1, framhalds- námskeið 2 o.s.frv. „Við ákváðum strax í upphafi að byrja smátt og þróa námið mjög hægt. Ekki taka neinar kollsteypur," taka þær fram. „Það var t.d. í fyrsta skipti í fyrra sem náminu var skipt niður og skólinn starfaði í júní og ágúst. Námskeið fyrir leik- ara og leikstjóra skal haldið í júní og fyrir tæknimenn í ágúst. Það verður undantekn- ing frá þessu þetta árið.“ Þeg- ar leiklistarskólinn fer af stað í ágúst í ár verða áhugaverð námskeið í gangi. Þar verður „Tækni gamanleikarans“ sem Vala Þórsdóttir kennir, „Master Class“ sem Viðar Eggertsson kennir og „Radd- þjálfun, söngur og hreyfing“ sem Rósa Guðný Þórsdóttir kennir ásamt Valdísi Jóns- dóttur talmeinafræðingi. Alltaf hefur gengið vel að fá kennara á námskeiðin. „Við viljum að það komi fram að þáttur framkvæmdastjóra bandalagsins, Vilborgar Val- garðsdóttur, í skólastarfinu er 24 Vikan Texti: Halla Bára Gestsdóttir M y n d : Gunnar Sverrisson

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.