Vikan


Vikan - 08.08.2000, Side 60

Vikan - 08.08.2000, Side 60
Sumarleikur Vikunnar og Samvinnuferða - Landsynar í næstu fjórum tölublöð um munu spurningar númer 2-5 birtast suo nú er að byrja að safna beim saman. Dregið verður í Sumarleiknum 26.ágúst Hvað eru margir golfvellir á Peguera? Safnið saman svörunum við öllum fimm spurn- ingunum og sendíð okk- ur fyrir 26. ágúst, merkt nafní, kennitölu og símanúmeri. inn fagri og rómantíski bær Peguera hefur stund- j um verið kallaður veðurperla eyjarinnar Majorka. Bærfnn er sérstaklega hreinlegur og aðlað- Æf andi og býður upp á allt það sem kröfuharðir sól- ardýrkendur geta hugsað sér. Peguera stend- f J ur við fallega klettavík, umvafinn einstakri náttúrufegurð skógi rnljáfl vaxinna fjallshlíða. Bærinn hefur löngum verið uppáhaldsstað- ur listamanna ogirer þess merki með sitt fágaða yfirbragð. Allt frá því á 14. öld hefur hann verið sumarleyfisstaður yfir- stéttarfólks frá Evrópu. Sérstaða Peguera felst í því að bærinn er sérstök blanda sveitaþorps og fjörmikils baðstrandarbæjar. Yfirstaðnum rík- ir friðsæld og fágun, en þegar kvölda tekur, tekurvið ið- andi næturlíf með fjölda skemmtistaða og veitingahúsa. Strendur Peguera eru aðgrunnar og hreinar og þar er góð aðstaða til alls kyns leikja og íþróttaiðkunnar. Baðstrend- urnar liggja í skjóli fjallanna Galatzo, Na Mario og Garaffa sem mynda þar einstaka veðursæld og náttúrufegurð. íþróttaaðstaða á Peguera er frábær, fimm golfvellir eru í bænum og þar er nýtt og.glæsilegt íþróttahús þar sem hægt er að stunda bilj arð, tennis, leikfimi, pílukast og bogfimi svo eitthvað sé nefnt. Hótelin bjóða einnig upp á alls konar skemmtidagskrá og brydda upp á ýmsum uppákomum frá morgni til kvölds svo það ætti að vera nóg við að vera á Peguera. Vestur af Peguera er ein fallegasta vík Majorka, Cala Forn- ells. Þar er náttúrufegurðin einstök og útsýnið stórbrotið og gaman er að skoða þar hvítkölkuð húsin sem eru í ein- stöku uppáhaldi hjá kvikmyndaframleiðendum. Palma, höfuðborg Majorka, er í aðeins um 20 km fjarlægð frá Peguera svo það er sjálfsagt að koma þar við, skoða stórborgina og njóta þess sem hún hefur upp á að bjóða, svo sem góðar verslanir, lífleg torg og þröngar götur með skemmtilegu mannlífi og litlum veitingahúsum. Svaraðu fimm auðveldum spurn- ingum og Uu gætir komíst til Peguera í haust - frítt. Vikari

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.