Vikan - 17.10.2000, Page 18
Þetta er huglægt lítið
verk og ég vona að
sýningarnar verði vel
sóttar fólki til holl-
ustu á jólaföstunni.
Kaffileikhúsið hóf starfsemi árið 1994 og hefur löngu náð að festa sig ræki-
lega í sessi. Segja má að Kaffileikhúsið sýni og sanni áþreifanlega að um-
hverfið þarf hvorki að vera margbrotið né stórt í sniðum til að leiklist geti notið
sín. Jórunn Sigurðardóttir er leikhússtjóri Kaffileikhússins og hún segir í kynn-
ingu sinni á starfseminni að leikhúsið hafi í upphafi bryddað upp á því ný-
næmi að tvinna saman andlega og líkamlega upplyftingu með þvf að bjóða
upp á kaffi eða mat á viðráðanlegu verði um leið og andinn er nærður með
því að horfa á góða leiklist. Hún bendir á að Kaffileikhúsið sé samt ekki veit-
ingastaður í skilning þess orðs og kannski ekki heldur leikhús í þrengsta skiln-
ing þess orðs. í Kaffileikhúsinu séu allar aðstæður til leikhúsiðkunar reyndar
mjög erfiðar, ekkert svið, enginn áhorfendasalur og lítil lofthæð. En hvernig
dettur fólki þá í hug að vera að basla við þetta við svo erfiðar aðstæður?
„Við erum vissulega með mjög
sérstakt rými en samt sem áður
hefursalurinn í Hlaðvarpanum,
Kaffileikhúsið, orðið óumdeil-
anlegur samastaður fyrir leik-
list. Salurinn er algjör „barba-
brella". Þaðeralvegmakalaust
hvernig má nýta hann og gera
að vettvangi fyrir leiksýningu,
fundi, mannamót og margt
fleira. Ég hef sjálf oft stórundr-
ast það hvernig hann rúmar
margvíslegar uppákomur og
heldur þrátt fyrir allt notalegu
andrúmslofti. Salurinn var all-
ur tekinn f gegn I fyrra en held-
ur samt mjög vel þessu gamla
yf irbragði. “
Kaffileikhúsið hefur fengið
orð á sig fyrir að vera mjög frum-
legt í efnistökum og efnisvali.
Er það með vilja gert?
„Þessi mikla nálægð gerir
auðvitað sérstakar kröfur til
þeirra sem standa að leiksýn-
ingunum. Leikstjórinn og leik-
arinn verða að sameinast um að
skapa sýningunni nákvæmlega
rétta stílinn ekki bara fyrir sýn-
inguna heldur einnig fyrir að-
stæðurnar í Kaffileikhúsinu. Við
höfum sömuleiðis reynt aðfá til
liðs við okkur leikara sem ekki
eru mjög áberandi. Ásýnd leik-
Iarastarfsins hefur
verið að breytast
þannig á undanförnum árum að
leikarar eru að verða í æ ríkara
mæli fólk í fréttum. Það verða
eins og svolitlar tískusveiflur í
því hvaða leikarar eru sýnileg-
ir. Við eigum mikið af góðum
leikurum bæði yngri ogeldri og
það er ekki allra að vera á þess-
um öldufaldi sem myndast þeg-
ar holskeflur fjölmiðlanna fara
af stað.“
Fimm ólíkir einleikir
Kaffileikhúsið veitir hópum
og listamönnum tækifæri til að
koma með sýningar inn í húsið
og það var gert á dögunum þeg-
ar Hugleikur lék þar nokkrum
sinnum óperuþykkni sitt Bíbí og
blakan. Verkið er í anda fyrri
verka Hugleiks og varpar nýrri
sýn á ýmsa áður óþekkta þætti
í gamalli goðsögu. Fram að ára-
mótum býður Kaffileikhúsið
síðan einnig einleikjaröð undir
18
Vikan