Vikan - 17.10.2000, Blaðsíða 27
hann greiddi skólagjöldin og
400dollaraámánuði. Þaðgerði
hann með eftirsjá og eftir þó
nokkurt tiltal af hálfu lögfræð-
inganna var henni leyft að taka
með sér þær gjafir sem hann
hafði gefið henni meðan þau
bjuggu saman. Wöndu var alveg
sama hún vildi bara losna úr
sambandinu en hún fann að
eiginmaðurinn var síður en svo
sáttur. Hún lét í Ijós bæði við
lögfræðinga sína og vini að hún
væri hrædd við fyrrverandi
mann sinn og óttaðist hefndar-
aðgerðir af hans hálfu.
Skotin á bílastæði
Margt bendir til þess að Lew
hafi reynt að fá Wöndu til að
snúa til sín aftur en hún var
búin að fá alveg nóg. Hún skrif-
aði til ættingja sinna í Póllandi
að hún þyldi hann ekki lengur
og vildi ekki vita af honum neins
staðar nálægt sér. Líf hennar
breyttist einnig til mikils batn-
aðar við skilnaðinn. Hún tók
íbúð á leigu í háskólahverfinu í
Washington og hún kynntist
pólskum innflytjendum sem
héldu mikið saman í nýja land-
inu. Þeirra á meðal var maður
á svipuðum aldri og hún. Aug-
Ijóst var öllum sem til þekktu að
vel fór á með þeim tveimur en
sambandið náði hinsvegarekki
að þróast. Hinn 11. ágúst 1980
klukkan korter yfir tvö að degi
til hringdi maður nokkur í neyð-
arlínuna og tilkynnti um illa
slasaða konu á bílastæði í ná-
grenni háskólans. Lögreglu-
mennirnir sem komu á staðinn
hittu þarfyrir mann í miklu upp-
námi. Hann benti þeim á unga
konu sem lá í götunni með sár
á hálsi. Það blæddi heiftarlega
úr sárinu og maðurinn hafði gert
árangurslausar tilraunir til að
stöðva blæðinguna.
Lögregluþjónarnir sáu fljótt
að konan var í dauðadái og þeir
fundu engan púls hjá henni.
Sjúkraflutningamennirnir sem
komu á staðinn voru ekki bjart-
sýnir á að takast mætti að lífga
hana við, enda sáu þeir að kon-
an hafði verið skotin og þeir
töldu líklegt að kúlan sæti föst
í heila hennar. Maðurinn sem
fann konuna var tryggingasölu-
maður og rak fyrirtæki í húsinu
við bílastæðið ásamt konu
sinni. Hann gat gefið lögregl-
unni þær upplýsingar að látna
konan héti Wanda Touchstone
og hefði rétt áður en hún var
skotin verið inni á skrifstofu
hans að gefa konu hans upp-
lýsingar sem vantaði vegna bíla-
tryggingar sem hún hugðist
kaupa af þeim. Maðurinn hafði
farið út á planið til að sækja
skjöl í bílinn sinn ogsá þá smá-
vaxna, Ijóshærða konu standa
við bíl Wöndu. Hann starði á
hana svolitla stund og konan
horfði róleg í augu hans. Hann
fór inn á skrifstofuna aftur og
stuttu síðar gekk Wanda út og
I átt að bíl sínum. Þá heyrðu þau
hjónin hvelli sem hann héltfyrst
að kæmu frá bíl. Kona hans var
sannfærð um að þetta hefðu
verið skot og þess vegna hljóp
hann út á bílastæðið.
Hann sá ekkert í fyrstu og
sneri aftur inn á skrifstofuna
en var varla kominn inn þegar
tvær konur hrundu upp dyrun-
um og báðu um að hringt yrði í
neyðarlínuna því kona hefði ver-
ið skotin úti á bílastæðinu.
Maðurinn hringdi og hljóp síð-
an út en þá var of seint að gera
nokkuð til að hjálpa konunni
sem lá á götunni. Önnur konan
hafði séð bíl keyra burtu stuttu
áður en þær fundu særðu kon-
una og hún mundi bílnúmerið.
Lögreglan komst fljótt að því
að bílinn var bílaleigubíll sem
leigður hafði verið Cynthiu Ma-
hler. Bíllinn var af gerðinni
Datsun 200 SX , rauður að lit
og nú var lýst eftir bílnum og
ökumanninum Ijóshærða.
InnkaupafuIItrúi fyrirtækis í
norðurhluta borgarinnar sat í bíl
sínum fyrir utan vinnustað konu
sinnar og var að
bíða eftir að hún
lyki vinnudeginum
þegar hann stillti
fyrir tilviljun á lög-
reglurásina.
Klukkan var fjórð-
unggengin í fimm
þennan sama dag.
Hann heyrði lýs-
inguna á bílnum
og gapti nánast af
undrun þegar
hann sá eftirlýsta
bílinn aka fram
hjá. Hann hljóp
inn á skrifstofu
konu sinnar og
hringdi í lögregl-
una. Lýsingin á
bílnum passaði í öllum smáat-
riðum en konan sem ók sagði
hann að hefði verið með sítt
dökkt hár. Stuttu síðar fannst
bíllinn yfirgefin I húsasundi
ekki langt frá.
Hin fíngerða, laglega
Cynthia Mahler var leigð
til að drepa Wöndu Touch-
stone fyrir fyrrverandi eig-
inrnann hennar.
Hringir í lögregluna
Dan Engle rannsóknarlög-
reglumaður var yfir rannsókn-
inni og honum fannst ekki blása
byrlega. Hann fann því til mik-
ils feginleika þegar einn þeirra
lögreglumanna sem var á síma-
vakt kom og sagði honum að
Cynthia Mahler væri í síman-
um að tilkynna stuld á bílnum
sem hún hafði leigt kvöldið
áður. Hann sagði að hún hefði
sagst vera stödd á flugvellin-
um og nú vissi lögreglan að hver
mínúta var dýrmæt. Þeir fóru og
sóttu stúlkuna sem hafði geng-
ið frá leigusamningi Cynthiu
kvöldið áður og óku með hana
í loftköstum út á flugvöll.
Stúlkunni tókst að þekkja Cynt-
hiu Mahler í mannfjöldanum og
hún var handtekin. Fljótlega
komust lögreglumennirnir að
því að Milos nokkur Panich
hafði borgað flugfar fyrir Cynt-
hiu til borgarinnar frá Napadal
í Kaliforníu. Milos þessi var gift-
ur dóttur Lew Touchstone. Lög-
reglan var ekki lengur f vafa um
hver hefði drepið Wöndu Touch-
Dan Engle var rannsókn-
arlögreglumaðurinn sem
stjórnaði rannsókninni á
morðinu á Wöndu Touch-
stone.
stone og hvers vegna.
Cynthia Mahler hafði margoft
komið við sögu lögreglunnar
áðurvegna innbrota, þýfissölu,
mannráns og fleira. Maður
hennar var í fangelsi fyrir
bankarán og vitað var að þau
hjónin víluðu fátt fyrir sér. Þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir lögreglu
tókst aldrei að sanna að Lew
Touchstone hefði leigt Cynthiu
Mahler til að drepa fyrrverandi
konu sína. Lögreglan var þó
aldrei í neinum vafa um að svo
hefði verið. Cynthia játaði að
Lew hefði lofað að greiða sér
3000 dollara og gefa sér ný-
legan pallbíl ef hún dræpi konu
hans. Orð stóð þó gegn orði því
Lew neitaði öllum sakargiftum
og dóttir hans og eiginmaður
hennar neituðu einnig alfarið að
hafa haft milligöngu um ráðn-
ingu morðingjans laglega.
Cynthia var dæmd í 25 ára fang-
elsi og börnin hennar fimm eru
því móðurlaus. LewTouchstone
hefur hins vegar lifað í hálf-
gerðri einangrun slðan morðið
var framið. Þótt dómstólum
tækist ekki að dæma hann gild-
ir ekki það sama um almenn-
ingsálitið.
27
Vikan