Vikan - 17.10.2000, Qupperneq 52
Islendingar hafa löngum
verið taldir hjátrúarfullir og
opnir fyrir alls kyns yfirnátt-
úrulegum fyrirbrigðum.
Aldalöng einangrun og
myrkur höfðu að sjálfsögðu
sitt að segja hér áður fyrr og
kyntu undir ótta manna við
hið óþekkta. í dag er öldin
önnur og okkar daglega líf
litast ekki af ótta við álfa,
drauga og huldufólk. Samt
sem áður er áhuginn á alls
kyns yfirskilvitlegum málefn-
um gífurlegur og margir telja
sig hafa orðið fyrir einhvers
konar reynslu sem ekki
verður skýrð með aðferðum
eða rökum hefðbundinna
vísinda.
Ærsladraugar eða Polt-
ergeist eins og þeir heita á
þýsku eru fyrirbrigði sem
talsvert hefurverið ritað um.
Þeir hafa orðið mörgum ís-
lenskum jafnt sem erlend-
um rithöfunum yrkisefni og
um þá hafa verið gerðar
frægar samnefndar bíó-
myndir. Einnig eru til marg-
ar skrásettar frásagnir af
meintum ærsladraugum
hérlendis sem og erlendis.
Dulsálartræðin tíl tijálpar
Ærsladraugagangur eða firð-
hræringar eins og fyrirbærið er
líka kallað er ólíkt ýmiss konar
öðrum dulrænum fyrirbrigðum
að því leyti að það hefur verið
rannsakað talsvert innan dulsál-
arfræðinnará vísindalegan hátt.
Þar hefur verið reynt að styðj-
ast við náttúruvísindi eins og
t.d. eðlisfræði til að komast að
því hvort einfaldar jarðbundn-
arskýringarséu á „draugagang-
inum", t.d. hvortstóll hafi færst
úr stað vegna jarðskjálfta en
ekki vegna fyrrnefndra firðhrær-
inga.
En hver er munurinn á
,,venjulegum“ draugagangi og
þeim látum sem ærsladraugar
eru sagðir geta valdið?
,,Venjulegur“ draugagangur
eða reimleikar eru yfirleitt
bundnir við einhverja ákveðna
staði, enda er oft talað um að
það sé reimt á hinum eða þess-
um staðnum. Þeir sem telja sig
hafa orðið varir við reimleika
tala yfirleitt um að þeir hafi
skynjað eða séð svipi af fólki
eða jafnvel dýrum. Alls kyns
hljóð eins og mannsraddir,
hvísl, fótatak, högg, brak og
brestir og jafnvel kaldur gustur
eru einnig algeng.
Ærsladraugagangur er öðru-
vísi að því leyti að hann virðist
vera bundinn við einhverja
ákveðna manneskju en ekki hús
eða stað. Draugagangurinn á sér
því stað nálægt þessari mann-
eskju og kemur yfirleitt þannig
Ærsladraugar eða Polt-
ergeist eins og þeir kallast
á þýsku eru fyrirbrigði
sem talsvert hefur verið
ritað um. Þeir hafa orðið
mörgum íslenskum jafnt
sem erlendum rithöfund-
um yrkisefni og um þá
hafa verið gerðar frægar
samnefndar bíómyndir.
52
Vikan