Vikan - 17.10.2000, Síða 53
Ærsladraugagangurinn á
sér því stað nálægt þess-
ari manneskju og kemur
yfirleitt þannig fram að
hlutir færast úr stað eða
hendast jafnvel veggja á
milli án nokkurrar eðiilegr-
ar skýringar.
Ærsladraugagang-
ur er öðruvísi en
„venjulegur“
draugagangur að
því leyti að hann
virðist vera bund-
inn við einhverja
ákveðna mann-
eskju en ekki hús
eða stað.
Mörg slík dæmi hafa verið
skrásett hérlendis og erlendis
og er til dæmis hægt að nefna
tvö fræg tilfelli semgreinterfrá
í Sálfræðibók Máls og menning-
ar. Annað þeirra átti sér stað á
bænum Hvammi í Þistilfirði árið
1913 þar sem átján ára gömul
heimsæta á bænum virtist valda
því að hlutum var kastað til eða
þeirtýndust en fundustsvo aft-
ur á furðulegum stöðum. Athug-
anir „virtra mannaoggætinna"
eins og það var orðað, meðal
annars hreppstjórans í sveitinni
leiddu í Ijós að hlutirnir virtust
ekki hafa verið færðir af manna
völdum. Stúlkan var þá send
yfir á annan bæ og hættu þá öll
læti á bænum. Ekki varð vart við
nein læti á hinum bænum sem
stúlkan var send á.
Hitt tilfellið gerðist á lög-
fræðiskrifstofu í bænum Rosen-
heim í Þýskalandi árið 1967.
Þar fóru að gerast ýmsir dular-
fullir atburðir sem ollu því að
erfitt var að halda uppi eðlilegri
starfsemi. Ljósperur sprungu
óeðlilega oft, símareikningarnir
ruku upp þótt ekki væri hringt
meira en venjulega, málverk
snerust í hringi og 175 kg þung-
ur skjalaskápur færðist um 30
sm frá vegg. Þekktir eðlisfræð-
ingar voru fengnir til að kanna
málið og leita eðlilegra skýringa
á látunum en að lokum urðu
þeir að játa sig sigraða. Sú sem
látunum olli var nítján ára göm-
ul starfsstúlka á skrifstofunni
sem hét Annemarie. Lætin virt-
ust alltaf eiga sér stað i kring-
um hana og þegar hún hætti að
vinna á skrifstofunni í febrúar
árið 1968 linntu látunum jafn
snögglega og þau höfðu byrj-
að.
Eyðíleggjandí og ofbeldis-
kennd fvrirbrigði
Algengasta einkenni ærsla-
drauga er, eins og áður sagði,
hreyfing á hlutum en einnig eru
alls kyns hljóð algeng. Þar má
meðal annars nefna högg og
smelli á hurðum, veggjum eða
húsgögnum og stundum einnig
háværa hvelli. Sumir hafa
einnig greint frá því að þeir hafi
heyrt barnsgrát þótt ekkert barn
væri á staðnum.
Styrkur fyrirbrigðanna virðist
í flestum tifellum minnka eftir
því sem fjær dregur þeim sem
veldur þeim.
Það sem er ef til vill óhugn-
anlegast við ærsladrauga og það
sem hefurorðið kvikmyndagerð-
armönnum og rithöfundum
uppspretta hryllingsmynda og
spennusagna er ofbeldiskennd
og eyðileggjandi ,,hegðun“
ærsladrauganna. Hlutir brotna
og eru eyðilagðir eða jafnvel
kveikt i þeim. Stórum og þung-
um hlutum er hent í átt að
manneskjunni sem ærsladraug-
urinn ofsækir og alls kyns hljóð
virðast vera framkölluð sérstak-
lega til að taka viðkom-
andi manneskju átaugum
og gera henni bilt við.
Það er því ekkert skrýt-
ið að ærsladraugar vekji
óhug hjá mörgum sama
hvort þeir í raun trúa á fyr-
irbærið eða ekki.
(Heimildir: Sálfræðibókin,
Time, Spiegel o.fl).
um.
Má þar meðal annars nefna
að sá sem verður fyrir ærsla-
draugaganginum eryfirleitt ung
manneskja eða unglingur. Ung-
lingsstúlkur verða oftar fyrir
ærsladraugagangi en drengir.
Þeirsem lenda í slíkum drauga-
gangi eiga það yfirleitt sam-
merkt að eiga við einhvers kon-
ar sálræn vandamál eða erfið-
leika að stríða sem valda tauga-
spennu og álagi. Þó hefur ekki
verið sýnt fram á hvort ærsla-
draugagangurinn er orsök eða
afleiðing hinna sálrænu vanda-
mála því þótt almenningur hall-
ist yfirleitt að þvi að hinir sál-
rænu erfiðleikar séu orsök
draugagangsins má með sanni
segja að ærsladraugar geti tek-
ið hverja heilbrigða manneskju
sem er á taugum.
Einnig má nefna að yfirleitt
stendur ærsladraugagangur
ekki yfir lengur en i nokkra
mánuði og hættir ef mann-
eskjan sem verður fyrir honum
er send í burtu frá þeim stað þar
sem atburðirnir eiga sér stað.
fram að hlutir færast úr stað eða
hendast jafnvel veggja á milli án
nokkurrar eðlilegrar skýringar.
Úháð tíma og rúmi
Þrátt fyrir að við íslendingar
séum þekktir fyrir að hafa mik-
inn áhuga á dulrænum fyrirbær-
um er ærsladraugagangur síð-
ur en svo séríslenskt fyrirbæri.
Stutt leit i erlendum blöðum
og á Netinu leiddi i Ijós að hægt
er að finna frásagnir af ærsla-
draugum víða að úr heiminum
og hvort sem er í nútímanum
eða í fortíðinni. Finnar og Þjóð-
verjar virðast hafa verið dug-
legir að skrásetja frásagnir af
ærsladraugum en einnig má
finna mikið af frásögnum frá
Ærsladraugar ásækja yfir-
leitt ungar manneskjur
eða unglinga. Unglings-
stúlkur verða oftar fyrir
ærsladraugagangi en
drengir. Þeir sem lenda í
slíkum draugagangi eiga
það yfirleitt sammerkt að
eiga við einhvers konar
sálræn vandamál eða erf-
iðleika að stríða sem valda
taugaspennu og álagi.
Bandaríkjunum, Kanada, Nor-
egi og Hollandi. Það er því Ijóst
að ærsladraugarnir virðast ekki
vera háðir tíma eða rúmi.
Ærsladraugar hinna ýmsu
landa virðast eiga ýmislegt sam-
eiginlegt sem greinir þá frá öðr-
um yfirnáttúrulegum fyrirbær-
Vikan 53