Vikan - 05.12.2000, Síða 39
1827-1841 Ár upP
byggingar. Sveinki þriðji vekur
nær gjaldþrota leikfangaverk-
smiðjuna úr dvala og gerir son
sinn að forstjóra hennar. Til að
hreinsa nafn Sveinkadóts og
bæta fyrir að verksmiðjan er
ekki í alfaraleið er ákveðið að
fara út í stærstu auglýsingaher-
ferð sem nokkurn tíma hefur
verið gerð. Öll jól ætlar Sveinki
fjórði að fljúga á sleðanum sín-
um um allan heiminn og útbýta
jólagjöfum til allra barna. Þetta
slær algjörlega í gegn en verð-
ur mjög dýrt.
1837 Sveinki þriðji deyr.
1851 Á meðan herferðin
stendur yfir hlaðast verkefnin
upp og álfarnir eru beðnir um
að vinna lengri vinnutíma og fyr-
ir lægri laun. Þeir kvarta en
Sveinki lofar að gera allt sem
hann getur til að hjálpa þeim.
Sem merki um samstöðu geng-
ur hann að eiga konu úr hópi
álfanna. Þetta styrkir samband
álfanna við fjölskyldu Sveinka.
1856 Sveinki fimmti fæð-
ist. Af því tilefni ákveður
Sveinki fjórði að vera heima hjá
sér og stingur upp á því að stór-
markaðir og búðaklasar notist
við staðgengla hans. Það er gert
og heppnast svo vel að hann
ákveður að svona verði þetta
héðan í frá.
1857-1867 Sveinki
fimmti vex úr grasi og eyðir
mestöllum tíma sínum í að
heimsækja vini sína og ætt-
ingja, álfana. Sveinki fjórði,
sem notar mestallan tfma sinn
til að byggja upp fyrirtækið,
virðist sáttur við það, öllu held-
ur lítur hann á það sem góða
kynningarstarfsemi.
1871 Vinnuálagið eykst til
muna hjá álfunum og þeir reyna
að sannfæra Sveinka fimmta
um aðtaka ráðin af föðursínum
og koma stjórninni aftur í hend-
ur álfanna.
1872 Sveinki fimmti ræn-
ir föður sinn völdum og dæmir
hann í ævilangt stofufangelsi í
vesturálmu kastalans.
1875 Sveinki fimmti les
bækur Karls Marx og ákveður að
kommúnismi verði innleiddur
á Norðurpólnum. Nokkrir álfar
mótmæla en þaggað er endan-
lega niður í þeim. (Vegna
kommúnismans var litnum á
jólasveinafötunum breytt úr
drapplitu yfir í rautt.)
1881 Sveinki fjórði deyr,
enn í varðhaldi, um svipað leyti
og nýja stjórnin fær byr undir
báða vængi. Jarðarförin er lát-
laus.
1887 Til að halda í við
mikla fólksfjölgun í heiminum
er Sveinkadóti, þar sem hing-
að til allt hefur verið handunn-
ið, breytt í iðnaðarverksmiðju.
Álfarnir framleiða nú grfðarlegt
magn leikfanga á færibandi.
1893 Annað stökkbreytt
hreindýr fæðist og er gef ið nafn-
ið Rúdolf annar í heiðursskyni
við þann fyrsta sem kommún-
istastjórnin Iftur á sem þann
sem kom stjórninni f hendur álf-
anna.
1900 Sigmund Freud
sendir frá sér bók um túlkun
drauma.
1902 Snæfinnur snjókarl
fer að sjást við ýmis tilefni eft-
ir að hafa verið álitinn dauður í
mörg ár. Um allt konungsríkið
segja börn að hann hafi sagst
ætla að koma aftur einhvern
daginn.
1906 Sveinki sjötti fæðist.
Sveinkafjölskyldan fagnar en
álfarnir láta sér fátt um finn-
ast.
1909-1922 Leikföng-
in frá Norðurpólnum, sem er
dreift árlega, bera merki áróð-
urs. Snæfinnur snjókarl heldur
áfram að sjást reglulega og
Sveinki fimmti finnur fyrir ör-
yggisleysi og mikilli hræðslu við
undirróðursstarfsemi.
1925 Sveinki fimmti deyrá
dularfullan hátt. Hann finnst
helfrostinn, grafinn í snjóskafli
í kastalagarðinum. Margir halda
að Snæfinnursnjókarl hafi myrt
hann en enginn getur sannað
það.
1926 Sveinki sjötti tekur
við og herðir um leið allar örygg-
isreglur. Hann stjórnar með
harðri hendi en þykir réttlátur.
Rafmagn heldur innreið sína í
kastalann og þorpið og
Ijósastaurar lýsa upp göturnar.
Sveinkadót þenst út og leik-
föngin halda áfram að vera áróð-
urstæki fyrir heiminn.
1929 Grepparnir (The
Grinch) reiðast yfir því að
Sveinki hefur gert jólin að sölu-
vöru. Þeir tala um hinn eina
sanna jólaanda og að hið verald-
lega eigi ekki að yfirskyggja há-
tíðina. Honum mistekst og í
hefndarskyni lætur Sveinki síð-
ar gera teiknimynd sem sýnir
Greppana sem hrein varmenni.
1949 Sveinki sjöundi fæð-
ist.
1979 Sveinki sjötti deyr af
eðlilegum orsökum.
1933-1990 Stöðug-
leiki ríkir á Norðurpólnum þar
sem alltgengur lipurlega
fyrirsig. Um hinn vest-
ræna heim fer ákveð-
ið ferli að myndast.
Börnin fá leikföng
frá Sveinka um
hver jól en um
leið og þau eld-
ast fara foreldr-
arnir að fleygja
leikföngunum
og Ijúga að
börnum sínum
að það sé enginn
jólasveinn ti
Þegarsvo börnin
verða fullorðin
ogeignasteigin
börn verða þau
hissa þegar
þau komast að
því að jóla-
sveinninn er til í al-
vörunni en þá eru þau orð-
in of gömul til að átta sigá sam-
særinu og lygaáróðurinn held-
ur áfram, mann fram af manni.
1997 Anti-Sveinki finnst
með hjálp ratsjárog kemur í Ijós
að hann býr í fylgsni neðanjarð-
ar hjá dvergunum á Suðurpóln-
um.
2000 Kvikmynd um Grepp-
ana frumsýnd, gerð að undirlagi
Sveinka sem hefur ekki enn
gleymt tilraun Greppana til að
ógna veldi Sveinkanna fyrir 71
ári. Jim Carey leikur aðalhlut-
verkið í myndinni.
2002 Kommúnisminn fell-
urá Norðurpólnum. Sveinki sjö-
undi flýgur réttsælis í kringum
jörðina í jólagjafaleiðangri sín-
um og lendir í árekstri við Anti-
Sveinka sem flaug rangsælis.
Mikil sprenging kveður við,
blindandi Ijóssjástá himni sem
fær vísinda-
menn
ivemxi
Anti-Sveinki hafi tortímt hvor
öðrum.
1991 Fyrstu merki um
Anti-Sveinka koma í Ijós.
1993 Fylgst er með Anti-
Sveinka í gegnum sjónauka og
hann Ijósmyndaður. Föt hans
eru einsog Sveinka nema rauða
og hvíta litnum hefur veriðsnú-
ið við. Föt hans eru hvít með
rauðum leggingum. Hann ber
stærðarinnar poka á bakinu,
fullan af gjöfum sem engan
langar í eða hefur þörf fyrir. (
stað þess að nota hreindýr flýg-
ur hann í baðkari sem átta fljúg-
andi kýr draga.
2007 Jafnaðarstefna verð-
urallsráðandi á Norðurpólnum.
Álfarnir eru við stjórnvölinn. Jól-
in eru ekki lengur söluvara eða
nýtt í hagnaðarskyni. Hamingj-
an heldur innreið sfna í kon-
ungsríkið.
2011 í Ijós kemur að
Sveinki sjöundi lét ekki lífið í
sprengingunni heldur lét Ifta
svo út. Hann fórtil Bahamaeyja
eftir sviðsetningu slyssins og
settist þar að. Hann finnst lát-
inn úr hjartaáfalli í japönskum
nuddpotti í félagsskap 30
þokkadísa.
Vikan
39