Menntamál - 01.03.1935, Page 22
20
MENNTAMAL
í livern hátt
á aí velja nemendur í æðri skóla?
Þessari þýðingarmiklu spurningu hefir ritstj. Mennta-
mála beðið nokkra skólamenn að svara lil birtingar í
Menntamálum. Það eru þeir menn, sem nánust kynni
hafa af þessum málum, vegna samstarfs milli skólanna,
er þeir veila forstöðu. Þessir menn eru: Dr. Alexander
Jóhannesson, rektor Háskólans, Ásgeir Ásgeirsson,
fræðslumálastjóri, Freysteinn Gunnarsson, skólastjóri
Kennaraskólans, Pálmi Hannesson, rektor Menntaskól-
ans í Reykjavík, Sigurður Jónsson, skólastjóri Miðba'j-
arskólans i Rvík, Sigurður Thorlacius, skólastjóri Aust-
urbæjarskólans í Rvík, Sigurður Guðmundsson, skóla-
meistari á Akurevri og Snorri Sigfússon, skólastjóri á
Akureyri. Þau svör, sem komin voru 8. febr., eru hirt
hér:
Svar dr. Alexamler Jóhannessonar,
rektors Háskólans.
Mér finnst ekki auðvelt aÖ svara spurningu yÖar: „Á hvern
hátt á að velja nemendur í æðri skóla?“ Eg er þeirrar skoð-
unar, að oll b'órn þjóðfélagsins eigi að hafa jafnan aðgang að
öllmn skólum landsins, og álít því skyldu þings og stjórnar, að
greiða eftir megni fyrir því, að svo geti orðið. Sú hefir og
orðið raunin á hér á landi, og standa íslendingar að því leyti
miklu framar en margar aðrar þjóðir. Að minnsta kosti er
svo um háskólanám. Nú tel eg auðvelt íyrir duglegan stúd-
ent að ljúka embættisprófi hér við háskólann á 4—6 árum.
án þess að hafa verulegar skuldir að námi loknu. Stúdentar.
sem fá Garðvist hér, geta komizt af með ca. 1000—1200 kr
á ári (miðað við 8 mán.) og geta unnið sér inn sumarmán-
uðina nokkurn hluta þessarar upphæðar og njóta auk þess