Menntamál


Menntamál - 01.03.1935, Page 35

Menntamál - 01.03.1935, Page 35
MENNTAMÁX, 33 Ekki vegna þess, aS öllum sé svo bráÖnauðsynlegt aÖ reikna rétt, heldur vegna þess, aÖ þeim er nauÖsynlegt aÖ hugsa rétt. En eg þekki enga námsgrein, sem þjálfar betur í því. Hafi unglingur fengiÖ góÖa undirbúningsmenntun i stæröfræði og íslenzkri málfræÖi, geri eg ráÖ fyrir, að þar meÖ hafi verið lagÖur sá grundvöllur, sem ábyggilegastur sé undir hvaÖa fram- haldsnám, sem vera skal. Að því er stærðfræðinámið snertir, kennir oft sama misskilnings hjá almenningi eins og viÖvíkj- andi málanáminu. Unglingar og aÖstandendur þeirra telja það aðalatriðiÖ, að yfirferðin sé sem mest, en ekki hitt, að grund- völlurinn sé sem traustastur, og eins er mest um það hugsað, að grautað sé í sem flestum erlendum málum, án þess aÖ fyrsta og helzta skilyrðið sé fyrir hendi tii þess að það nám korai að notum, sem sé móðurmálsþekkingin. Þenna. misskilning þarf að kveða niður. Eg geri ráð fyrir því, að ríkið sjái svo um, að val nemenda í æðri skólana verði ekki liáð efnalegum aðstœðum. Það er ríkinu hagur, að koma sér upp nýtum og færum starfsmönn- um, þótt það verði að öllu leyti að kosta þá til náms. En hitt er því margfaldur skaði, að róa fyrst um fjölda ára að meira eða minna leyti undir ómögulegum nemendum, til þess að gera þá að ómögulegum starfsmönnum. Sig. Jónsson. Svar Sigurðar Thorlacius, skólastjóra Austurbæjarskólans í Reykjavík. Heiðraði ritstjóri Menntamála. Eg vil ekki skorast undan þvi, að svara fyrirspurn þinni, enda þótt mér sé ljóst, að um tæmandi úrlausn getur ekki orðið að ræða, allra sízt í svo stuttu máli, sem hér er ætlað rúm fyrir. í spurningunni felst mjög mikið vandamál skóla og þjóðfé- lags. Val nemenda í æðri skóla (eg ræði aðeins um mennta- skóla og háskóla) hefir áhrif í ýmsar áttir, en einkum þrenns konar: Það hefir áhrif á starf barnaskólanna, sem beint eða 3

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.