Menntamál - 01.03.1935, Síða 57
MENNTAMÁL
55
Heimavistarskólinn í Reykjanesi.
Skólarnir að Strönd á Rangárvöllum og Reykjanesi við ísa-
fjarðardjúp, eru algjörlega byggðir samkvæmt tillögum Aðal-
steins. Er skólinn að Reykjanesi hið bezta búinn að áhöldum
öllum, líklega betur en flestir eða allir heimavistarskólar lands-
ins. Hafa Djúpmenn, sem að skólanum standa, sýnt hinn mesta
skilning á skólastarfsemi þessari og leyft skólastjóranum að
afla áhalda og tækja eftir fullkomnustu þörfum. Hefir skól-
inn nú tvö eintök af öllum venjulegum landabréfum og jarð-
líkan, sömuleiðis náttúrufræðimyndir, mælikvarða, teninga o. f 1.,
vandað orgel, 3 hefilbekki í smíðastofu, 6 sett smíðaáhöld, vefn-
aðarramma, bókbandsáhöld, nokkur eðlisfræðitæki, sem bætt er
við í skólanum, o. fl. hluti og áhöld til handavinnu.
Á Reykjanesi hefir um alllangt skeið verið sundkennsla; jarð-
hiti er þar nægur. Hefir sundlaug verið byggð þar í samein-
ingu af sýslunni og ísafjarðarkaupstað. Skólinn hefir not af
sundlauginni.
Þórir Baldvinsson, teiknimeistari, sem teiknað hefir skólann,
hefir skrifað eftirfarandi lýsingu, er fylgir myndunum:
„Myndirnar eru af barnaskólanum á Reykjanesi við ísafjarð-
ardjúp, sem reistur var á síðastliðnu sumri, heimavistarskóla