Menntamál - 01.03.1935, Qupperneq 59
MENNTAMÁL
57
ar, ef til vill ekki í fyrstu, hversu mikla þýÖingu sveitaskól-
arnir geta haft fyrir menningu og beinlinis atvinnulíf og starfs-
háttu heilla héra'Öa.
í þessu hefti Menntamála er lýsing á starfi heimavistarskól-
ans að FlúÖum i Árnessýslu, sem bregður ljósi yfir þýÖingu
félagslífsins og samstarfsins undir góÖri stjórn og hugkvæmni.
G. M. M.
II. Flúðir í Árnessýslu.
Upphaf skólans. Heimavistar-
skólinn að Flúðum, sem heitir
Barnaskóli Hrunamánna, var stofn-
aður árið 1929. Hér hafði áður
verið farkennsla, en þetta ár var
fræðsluhéraðinu breytt í skólahér-
að, skólahús byggt um sumarið og
undirritaður ráðinn forstöðumaður
skólans. Voru menn hér mjög sam-
huga og samtaka um þessar fram-
kvæmdir, en forgöngu málsins hafði
hinn ágæti maður, sr. Kjartan
Helgason í Hruna. Mun það hafa
verið eitt með því síðasta, er hann
vann í almenningsþarfir, því að
hann veiktist fyrsta veturinn, sem
skólinn starfaði og dó á öndverðu ári 1931, svo sem kunnugt
er. Eg tel það hafa verið óbætanlegt tjón þessari ungu skóla-
stofnun, að sr. Kjartans missti svo fljótt við. Það er þjóð-
kunnugt, hver afbragðsmaður hann var á sviði uppeldis- og
fræðslumála.
Land og hús. Skólinn var reistur við svonefndan Hellis-
holtahver. Hverinn var keyptur til afnota fyrir skólann, ásamt
25—30 ha. landspildu. Skólahúsið er 14X7 m að ummáli, ein-
Ingimar Jóhannesson.