Menntamál


Menntamál - 01.03.1935, Side 60

Menntamál - 01.03.1935, Side 60
58 MENNTAMÁl, lyft, portbyggt og kjallaralaust. NiÖri er skólastofa, bor'Östofa, 2 matreiðsluherbergi, skrifstofa og forstofa. Uppi eru 2 íbúÖ- arherbergi handa kennara, stúlknaherbergi, baðklefi og 3 svefn- herbergi skólabarna. Efst er þurkloft. ÞaÖ er einnig eina geymslupláss hússins. Áfast við húsið er klefi, sem reistur var yfir hverinn. Hvernum er skipt í tvennt með steinvegg. Oðr- um megin er ofninn, sem hitar húsið, en hinum megin er soð- inn allur matur og stundum bökuð brauð. Engin eldstó er í húsinu. Steinolíugasvélar notaðar, þar sem hverinn dugir ekki. Er það fremur óþægilegt, þvi að ýmislegt viðvíkjandi matar- gerð er ekki hægt að gera við hverahitann, t. d. baka, steikja o. fl. — Enn fremur er áfast við skólahúsið leikfimis- og sam- komuhús, 14X7 m. Er þar rúmgóður salur og leiksvið. Það hús er að hálfu eign U. M. F. Hrunamannahrepps. Skammt frá þessum húsum eru tvö samstæð steinsteypt útihús. Er annað þeirra hesthús og yfir því loft, til afnota fyrir funda- og sam- komugesti. í hinu húsinu er hlaða, fjós fyrir 4 kýr og haug- hús. Það hús fylgir landi skólans og er leigt mér, eins og það. 2 ha. af landinu hafa verið girtir og ræktaðir að mestu. Kostn- aðurinn við þessar framkvæmdir (ræktun, útihús, girðing) hef- ir verið greiddur úr hreppssjóði, en ákveðið, að kennarinn borgi árlega dálitla leigu eftir býlið, sem greiðist bæði í pen- ingum og jarðabótum. Þetta nýbýli hefir verið skírt FlúÖir. Dregur það nafn af flúðum í læk, sem rennur rétt hjá húsinu. Skólafyrirkomulagið. Skólahúsið er ætlað 20 nemendum. Skólabörn hafa verið nær 30 árlega, undanfarin 5 ár. Flest hafa þau verið í heimavist. Þeim er skipt í tvo hópa: eldri og yngri deild. Skipt um 12 ára aldur. Skólinn starfar vetrarlangt. Skólatími barnanna verður því að meðaltali 12 vikur á vetri. Hvor deild er hálfan mánuð í senn í skólanum. Skólinn er svo vel í sveit settur, að það eru ekki nema 3—4 bæir, sem eiga lengri leið að sækja en 8—10 km. Með því að hafa náms- tímabilin svona stutt, sparast vinna í skólanum, því að heim- ilin geta þá haft alla þjónustu, en ekki hygg eg það vera betra námsins vegna. — Skólinn leggur nemendum til dýnur og vatt-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.