Menntamál - 01.03.1935, Síða 61
MENNTAMÁL
59
teppi í rúm, einnig öll mataráhöld. Nemendur hafa meÖ sér
matarfélag. Fyrir því stendur ráðskona og rátSsmaÖur, sem
einkum sér um innheimtu og aÖdrætti, auk undirritaðs, sem
hefir yfirumsjón og reikningshald. Konan mín var ráðskona
þrjú fyrstu árin, en nú er önnur tekin við. Til að fyrirbyggja
misskilning, vil eg geta þess hér, að heimili rnitt er alveg út
af fyrir sig með allan mat og svo hefir það verið, síðan eg
kom hingað. En heimilin hafa sameiginlega borðstofu og mat-
reiðsluherbergi. Bændur leggja til skólahússins þau matvæli,
sem þeir framleiða sjálfir, t. d. garðávexti, kjöt, mjólk o. fl.
Er því jafnað þannig, að nokkurn veginn jafn skammtur mat-
væla komi á hvert barn, sem er í heimavist skólans. Það
mun láta nærri, að allur fjöldinn hafi borgað um og yfir helm-
ing fæðiskostnaðar með eigin framleiðslu. Dagsfæði barna hef-
ir verið að meðaltali 89,4 aurar þessi 5 ár. Geta má þess, að
verðið er nokkru hærra fyrir þá sök, að bændur ákveða, þeg-
ar skólinn byrjaði, að nota eingöngu íslenzkt smjör f. viðbit
handa börnunum, og er það gert enn þá. — Ráðskonukaup
og olía er borgað að hálfu úr hreppssjóði, en heimavistin borg-
ar kaup ráðsmannsins. Eg get þessa hér, af því að eg veit til,
að fæðiskostnaður hefir orðið minni en þetta í öðrum heima-
vistarskólum hér í sýslunni, a. m. k. stundum. Sumstaðar er
sú venja að greiða kaup starfsfólks að öllu leyti úr hrepps-
sjóði. Það lækkar vitanlega fæðiskostnaðinn. — Hér er venja
að greiða á haustin nokkra peningaupphæð fyrirfram með
hverju barni, sem er í heimavist. Er það gert til að ná sem
beztum kaupum á aðkeyptum matvælum. Mjólk er flutt til skól-
ans annan hvorn dag, allan veturinn. — Börnin hjálpa til við
daglegu störfin, t. d. gólfræstingu og þvott matariláta. Einnig
aðstoða þau kennara við eftirlit. Þessum störfum er jafnt skipt
milli þeirra. Eldri börnum er venjulega ætlað heldur meira
starf en þeim yngri.
Dagskráin. Daglegum störfum barnanna er hagað þannig:
Kl. 8 farið á fætur, tekið til í svefnherbergjum og þvegin
gólf. Kl. 9: Morgunverður. Kennsla kl. 9^2—12. Miðdegisverð-