Menntamál


Menntamál - 01.03.1935, Page 65

Menntamál - 01.03.1935, Page 65
MENNTAMÁL 63 um o. þ. h. Er þess fyrst aÖ geta, að börnin eru hér aldrei á hátiðis- eða tyllidögum, nema i. des, og nokkur sunnudags- kvöld. Þau fara venjulega mörg heim til sín um helgar. Það finnst mér sjálfsagt. Oftast koma þau þó á sunnudagskvöldin aftur. Þá skemmta þau sér á ýmsan hátt. Læt eg þau mjög sjálfráð um það. Skemmtanirnar eru þá helzt söngur, leikir, dans og sjónleikasýningar. Sjónleikirnir vekja einna mesta gleði og eru líka að mestu gagni. Börnin æfa oft sjónleiki í kennslu- stundum, en á skemmtikvöldum fá þau jafnan að leika á leik- sviði. Útbúnaður er vitanlega ófullkominn, en þar kemur ímynd- unaraflið til hjálpar, svo að gleðin er óblandin. Erfitt er að sýna útileiksvið, því að slík tjöld hafa ekki verið til hér fyr en í vetur. En reynt hefir það verið. Börnin sýndu einu sinni skóg á þann hátt, að reisa borð og bekki upp á endann og breiða á það græn teppi og tuskur. Og til að skreyta útsýnið enn þá meira, var sparikjóll vinnustúlkunnar hengdur á eitt tréð! Það vildi nefnilega svo vel til, að hann var grænn! — Tvo eða þrjá vetur æfðu nokkrir drengir söng í sérstökum flokki. Einn þeirra var söngstjóri. Vitanlega var ekki um „lærð- an“ söng að ræða — en gaman var að flokknum og ekki fat- aðist söngstjóranum taktslátturinn! Einu sinni hélt flokkurinn samsöng og seldi heimafólki aðgang fyrir I sykurmola hverj- um! Allar skemmtanirnar eru miðaðar við heimilisfólkið. Við höfum ekki enn þá haldið skemmtanir fyrir almenning, þó að mig hafi oft langað til þess. Valda því ýmsir örðugleikar, sem ekki verða ræddir hér. Almennar skemmtanir eru allar haldn- ar hér á staðnum. Skólabörn eru þá oft hér og eru þess vegna oft á slíkum samkomum. — Málfundafélag reyndum við i vetur. Það gafst vel. Blöð hafa stundum verið gefin út. Kostn- aðar vegna hefir það verið gert sjaldnar en skyldi. Nóg er efni til, svo að ekki stendur á því. Aðaltyllidagur skólans er á vorin, þegar skólanum er sagt upp. Þá er hér oft margt manna. Sýning er haldin á handa- vinnu og teikningum skólabarna, þau syngja, kennari og próf-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.