Menntamál - 01.03.1935, Side 78
76
MENNTAMAL
stundin neyða mann til að hugsa: Þetta er þó sannarlega að gera
lifsins brauð að dauðans steinum fyrir blessuð börnin. Kver-
lærdómurinn er orðinn óvinsæll — að mínu áliti að maklegheit-
um; en þó það væri ekki að maklegleikum, væri samt nauðsyn-
legt að taka tillit til þeirrar óvinsældar.---“
Þannig var skilningur hins vitra manns á uppeldismálum. Eg
virði séra Magnús fyrir þenna skilning. Bók þessi á erindi til
allra hugsandi manna, en þeir eru, sem betur fer, margir á landi
hér. Þess vegna verður bókin mikið lesin, þrátt fyrir sérstöðu sina.
G. M. M.
Til Færeyja. Ferðasaga skóladrengja vorið 1933, eftir
drengina sjálfa.
Bók þessi er sérstæð að því leyti, að drengir á fermingaraldri
hafa samið hana að öllu Ieyti, að undanteknum tveimur ritgerð-
um. Bekkur Aðalsteins Sigmundssonar, 8. A i Austurbæjarskól-
anum, fór undir stjórn hans til Færeyja vorið 1933. Vakti sú
för mikla hrifningu, ekki einungis meðal þátttakenda, heldur
einnig hjá þeim, sem heima sátu. Drengirnir voru svo duglegir
við undirbúning fararinnar, glaðir og vinnusamir, að slíkt mun
hafa létt Aðalsteini þær byrðar, sem óneitanlega leggjast á þann,
sem tekur að sér forystu slíkrar ferðar. Ferðin heppnaðist að
öllu leyti vel. Bitgerðir drengjanna bera það með sér, að þeir
hafa verið athugulir og glöggskyggnir ferðamenn, furðu víða mjög
skarpir í lýsingum sínum. Bókin er því mjög skemmtileg. Eg
hefi notað hana í lestrartimum og mæli hið bezta með henni til
barnaskóla. Auk þess fylgja margar góðar myndir.
G. M. M.
L. Gottfrid Sjöholm: Handledning vid Modersmálsunder-
visningen, under första och andra skoláren. I. Lás-
undervisning og II. Talövningar. Skrivning. Barnets
Sprakutveckling.
Eins og titill bókarinnar ber með sér, þá fjallar hún aðallega
um lestrarlcennslu, en þar að auki um samtalsæfingar, skrift
og vöndun og þróun barnsins í allri meðferð málsins 1. og 2.
námsárið. En i raun og veru eru i bókinni leiðbeiningar lil kenn-
arans um meðferð allra þeirra efna, sem hugsanlegt er að kenn-
ari láti barnið sýsla við fyrstu skólaárin.
Um móðurmálskennsluna segir Sjöholm i formála bókarinnar.
„Meðferð mín á móðurmálskennslunni fyrstu 2 skólaárin er