Menntamál


Menntamál - 01.03.1935, Page 80

Menntamál - 01.03.1935, Page 80
78 MENNTAMÁL irmyndir handa börnum við teikningar uin öll möguleg efni. Allir lestrarkennarar þurfa að eiga bókina og nota hana til hlið- sjónar i kennslu sinni. Jón Sigurðsson. Skola och samhálle er talið merkasta uppeldismálatímarit Svia. Ritstjóri þess er hinn kunni vinnubókafrömuður L. G. Sjöholm. — Útgefandinn, P. A. Norstedt & Söner, býður islenzkum kenn- urum ritið hingað sent fyrir 5 sænskar krónur árg., en það er sama og það kostar í Svíþjóð. Ritari Kennarasambandsins veitir nánari upplýsingar. Jean Piaget. Hinn heimskunni sálarfræðingur Ed. Claparéde segir, meðal annars, i formáia fyrir fyrstu bók Jean Piaget: „Með snilli afburðamannsins hefir Piaget tileinkað sér allar þessar nýju kenningar, eða réttara sagt tekið hið góða úr hverri þeirra, og veitt í einn farveg, lil túlkunar á sálarlífi barnsins. Hann hefir kveikt blys, sem mun hjálpa til að dreifa miklu af því myrkri, sem hingað til hefir hindrað þá, sem fást við rann- sóknir á rökvísi barna.“ Siðan þetta var rilað, hefir Piaget látið frá sér fara fjórar bæk- ur, sem allar hafa hlolið ágæta dóma. J. Piaget er óvenjulega lærður maður. Hann er ágætlega að sér í líffræði. Strax árið 1912, þá aðeins 15 ára gamall, varð hann kunnur meðal dýrafræðinga fyrir sjálfstæðar athuganir á sniglum Júrafjallanna, og um það efni varði hann doktorsritgerð 1918. Hann hefir einnig yfirgripsmikla þekkingu á heimspeki- kerfum, fornum og nýjum, og í bókmenntum sálarfræðinnar þekkir hann áreiðanlega hvern krók og kima. Jean Piaget er prófessor í sálarfræði við háskólann í Genf. Auk þess hefir hann nýlega gerzt formaður Alþjóðaskrifstofu uppeldismála. Bækur Piaget eru allar frumsamdar á frönsku, en þýddar á ensku. Hér verður getið bókarheitanna á ensku, í þeirri röð, sem þær hafa komið út. The Language and Thought of the child. London 1920. Helztu viðfangsefni bókarinnar eru þessi: Hvaða þörfum leitasl barnið við að fullnægja, þegar það talar? Samtiil barna. Að live miklu leyti skilja börn hvert annað? Spurningar barna. Judgment and Reasoning in the child. London 1928. Bókin: fjallar um helztu einkenni hugsunar og rökvísi barna.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.