Menntamál - 01.03.1935, Side 82
80
MENNTAMÁL
lögum og bendingum að rannsókn lokinni og munu tiliögurnar
prentaðar og sendar kennurum, þó líklega ekki fyr en undir
byrjun næsta skólaárs.
Þá ér starfandi lesbókarnefnd, er skipuð var af kennslumála-
ráðherra snemma á árinu 1934. Er nefnd þessi að safna efni
i nýjar lesbækur fyrir börn, auk þess i handbækur við vinnu-
bókakennslu. Lesbækurnar gömlu, sem gefnar voru út að til-
hlutun landsstjórnarinnar fyrir 1910 eru ekki lengur fullnægj-
andi, þar sem þær hafa ekkert verið endurslcoðaðar, þrátt fyrir
hraðfara breytingar á ýmsum sviðum. Handbækurnar munu
verða gefnar út í heftum, 2 arka, með mörgum myndum. Kennslu-
málaráðherra hefir frestað útgáfu þessari, þangað til frumvarp
um ríkisútgáfu skólabóka hefir verið afgreitl í þinginu.
Unga fsland
verður á þessu ári þrjátíu ára. Hefir sú nýbreytni verið tekin
upp, að 2—3 síður í hverju tbl. eru helgaðar smábörnum. Eru
þær prentaðar með stóru letri og eiga margar myndir að fylgja.
Munu þessir leskaflar hjálpa til við lestrarnám barna og ætti
blaðið að komast á sem flest heimili, kennarar ættu einnig að
veita þessari nýbreytni athygli. — Bjarni Bjarnason kennari
sér um þessa leskafla.
Launamálið.
Vegna margra fyrirspurna um launamál kennara, vil eg geta
þess hér, að eg hefi klofnað frá meiri hluta launamálanefndar,
út af veigamiklum ágreiningsatriðum um kennarastéttina. Verða
ágreiningsatriði mín og kröfur birtar í nefndarálitinu og aðal-
atriðin í næsta hefti Menntamála. G. M. M.
Skiptar skoðanir.
Stuttar greinar undir þessari fyrirsögn byrja að koma i næsta
hefti.
Menntamál verða minnst 12 arkir þetta ár. 2. hcfti kemur í
byrjun april og 3. hefti í september. Verð árg. 5 kr.
Útgefandi: Samband íslenzkra barnakennara.
Ritstjóri: Gunnar M. Magnúss, Egilsgötu 32.
Afgreiðslu- og innheimtumaður: Pálmi Jósefsson, Freyjugötu 4(i.
Félagsprentsmiðjan.