Menntamál - 01.06.1940, Side 13

Menntamál - 01.06.1940, Side 13
MENNTAMÁL 11 kunna full skil á til daglegrar notkunar í skóla og utan, en um leið ætti það að vera raunhæf undirstaða undir þekkingu þess á móðurmálinu, þegar út í lífið kæmi. Þess vegna var tiltölulega mest tekið úr þessum tveimur flokk- um eða um 48% af allri talningunni. Til samanburðar voru svo valdir kaflar úr lesbókum fyrir eldri börn og þremur öðrum námsbókum, sem hafa verið og eru allstór liður á námsskrá skólanna. Var þá hægt að sjá, hvort nokkurt samræmi væri á milli flokkanna um orðaval og orðfæri. Við þá athugun kom í ljós, að þar var meira sameiginlegt en í fljótu bragði rnætti ætla að órannsökuðu máli, en að því verður vikið síðar. Það hefði auðvitað verið mjög æskilegt, að hægt hefði verið að hafa talninguna miklum mun stærri, en þess var ekki kostur að þessu sinni, enda auðvelt að bæta við, ef tækifæri býðst. Reynt var að hafa efni hvers flokks eins fjölbreytt og rannsóknargögn og stærð talningarinnar leyfðu. Ekkert bundið mál var tekið með. Skal nú nokkru nánar gerð grein fyrir einstökum flokk- um: I. Stílar. Við val stílanna voru aðallega tvö atriði höfð í huga, auk þeirra, er áður er getið: í fyrsta lagi, að frásögn væri sem minnst gölluð, og í öðru lagi, að stílarnir væru sem víðast að af landinu. Úr um 700 stílum, sem til greina gátu komið, voru valdir 160. Helmingurinn var skrifaður af telpum og helmingur- inn af drengjum. Orðaforða hvors kyns var haldið að- greindum. Auk þess voru stílarnir flokkaðir eftir skóla- fyrirkomulagi og aldri barnanna, en þar sem niðurstöður þeirrar skiptingar hafa ekki áhrif á heildarniðurstöður talningarinnar, verður ekki gerð nánari grein fyrir þeim hér. II. Bréf. Úr um 300 einkabréfum voru valin 50 frétta- og kunningjabréf, sem farið höfðu milli skyldra og vanda-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.