Menntamál - 01.06.1940, Page 17
MENNTAMÁL
15
Stílar 34559 orð lesmáls*)
Sendibréf 13415
Lesbækur 21332
Náttúrufræði . . 12720
íslandssaga .... 10109
Landafræði .... 8092
Samtals 100227 orð lesmáls
Tala einstakra orðmynda*) er 13636, ef eiginnöfn og
ártöl eru ekki talin með. Endurtekning þessara orðmynda
í lesmálinu er mjög misjöfn. % hlutar þeirra koma aðeins
fyrir í eitt skipti, þ. e. hafa tíðnina 1, en aðrar eru oft end-
urteknar, sumar nokkur þúsund sinnum.
Athugun á tíðni einstakra orðmynda leiddi í ljós, að 990
hinar algengustu höfðu hver tíðni 10 eða hærri og voru
með endurtekningum um 73% af öllu lesefninu. En ef
með eru taldar aðrar beygingarmyndir sömu orðmynda,
sem ekki náðu 10 í tíðni hver um sig, verða þær um 78%
af allri talningunni. Annars sýnir eftirfarandi yfirlit
nokkru nánar tíðni þeirra, en um einstakar orðmyndir
verður að visa til orðalistans. Hundraðstölur eru reiknaðar
af heildartölu talningarinnar (100227):
10 alg. orðm. eru 23695 orð lesmáls eða 23,64%
25 — — — 35548 — — — 35,47%
100 — — — 50263 — — — 50,15%
990 — — — 73155 — — — 72,99%
Til gleggra yfirlits skal hér sýnt með línuriti, hvernig
hlutfall ofanritaðra talna verður innbyrðis og sem hluti
af heildinni:
*) Orð lesmáls = textinn eins og hann liggur fyrir. Einstakar orð-
myndir = orðmyndir án endurtekninga. Orð = beygingarmyndir sama
orðs. — Dæmi: Kýr og kindur og hestar eru húsdýr. Kýrnar og kind-
urnar eru klaufdýr, en hesturinn hófdýr. Þetta eru 15 orð lesmáls,
12 einstakar orðmyndir, en ekki nema 10 orð.