Menntamál - 01.06.1940, Qupperneq 24

Menntamál - 01.06.1940, Qupperneq 24
22 MENNTAMÁL sjaldgæft orð náð hárri tíðni, þó að það komi aðeins fyrir í einni grein. Sérstaklega getur þetta átt við um nafnorð og þó helzt eiginnöfn og hlutstæð samnöfn. Gerum t. d. ráð fyrir, að rannsökuð sé saga um tvo menn, Bárð og Högna. Geta þá nöfn þeirra komið mjög oft fyrir, þó að algengustu manna- nöfn, svo sem Jón og Sigurður, finnist alls ekki í sögunni. í frásögn um tvo drengi getur orðið drengur komið fyrir í ýmsum myndum 10—20 sinnum á blaðsíðu, þótt orðið telpa sé þar aldrei notað, og sama máli gegnir um fjölda annarra orða. Til þess að vega upp á móti þessu, er nauðsynlegt að hafa sem breytilegast efni til rannsókna, og það er góður mælikvarði á, hvort eitthvert orð er algengt eða ekki, hvað það finnst í mörgum flokkum, ólikum að efni. Nú verður ekki sagt um talningu þá, sem hér liggur fyrir, að nein fátíð orð hafi á þennan hátt komizt á orðalistann. Þó eru þar nokkur, sem bera greinilega með sér, að þau eru bundin við sérhæft efni. Þannig er t. d. um súrefni og kolefni, sem aðeins fundust í einum flokki, náttúrufræð- inni. Önnur hafa komizt á listann, vegna þess, að þau voru svo oft notuð í einni eða tveimur greinum einhvers flokks- ins, eins og t. d. gangnamennirnir, sem stafar frá einni grein í lesbókaflokknum, jarl úr 2—3 köflum íslandssög- unnar, skessan úr æfintýri eftir 12 ára dreng og örfá önnur, sem þó eru almennari merkingar. Yfirleitt eru nafnorðin öðrum orðflokkum fremur háð efni því, sem um er ritað, og sýnir talningin það greinilega. Á orðalistanum eru 149 nafnorð, eða fleiri sjálfstæð orð en nokkur af hinum orð- flokkunum hefur, en eru þó tiltölulega lítill hluti af les- málinu og miklu minni en ýmsir aðrir orðflokkar. Lýsingarorð eru fremur fá á listanum, og öll, sem þar eru, má telja mjög almenn. Það er vitanlega erfitt að sýna fram á, hvort flest þau algengustu hafi komið fram í taln- ingunni eða ekki, en nokkra bendingu um það geta lita- nöfnin (gul, rauð, græn, blá, hvít, svört, brún, grá) gefið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.