Menntamál - 01.06.1940, Page 38

Menntamál - 01.06.1940, Page 38
36 MENNTAMÁL A 1) 990 orðmyndir (sbr. bls. 15 og 17) = 72,99% af taln. 2) Aðrar beygingarm. sömu orðm. .. = 5,53% — — B 403 orð (allar beyg.m. þeirra samanl.) = 6,61% — — C Samsetningar (f. hl. orðs) af A og B = 4,38% — — Raunverulega er því útkoman sú, að 85,13% af allri taln- ingunni er samstofna við þær 990 orðmyndir, sem á list- anum eru, -f- 403 orð önnur, en ef samsetningar af þessum orðum eru taldar með, hækkar hundraðstalan upp í 89,51%. Sýnir þetta enn glöggt, að það eru tiltölulega fá orð, sem eru meginþættir lesmálsins og breiða úr sér með fjölbreytt- um, endurteknum beygingum og samsetningum, þar til þau hafa náð að hríslast um allt meginmálið. Þau orð (10—11% talningarinnar), sem ekki eru innan þessarar umgerðar, hafa enga hagnýta þýðingu í þessu sambandi, á meðan ekki liggja víðtækari rannsóknir fyrir,og verður því ekki rætt um þau hér. Þó skal þess getið, að þar er nær eingöngu um nafnorð, sagnir og lýsingarorð að ræða. Það hefði mátt ætla, að komið hefði fram í stílunum og bréfunum nokkuð af óvönduðu máli, sem nú tíðkast mjög í kauptúnum og kaupstöðum og einnig er farið að breiðast út um sveitirnar, en svo reyndist yfirleitt ekki, þó að þar fyndust orð eins og hasar (3), hasarinn (1) og „reisa“ = ferðast (1). Hins vegar kom strœtó aldrei fyrir, en strætis- vagn 6 sinnum. Bió var notað 5 sinnum og bíómynd 1 sinni, en aldrei kvikmynd eða kvikmyndahús. Aðrar útlendar orð- slettur eða hrein orðskrípi fundust ekki. Framhaldsrannsóknir nauðsynlegar. Nú er það ljóst af því, sem hér að framan hefur verið sagt um rannsókn þessa, að hún leysir ekki nema að vissu marki það verkefni, sem nauðsynlegt er að vinna á þessu sviði, þótt réttmætt sé að gera ráð fyrir, að framhalds- rannsóknir breyti ekki höfuðniðurstöðum hennar svo

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.