Menntamál - 01.06.1940, Qupperneq 42

Menntamál - 01.06.1940, Qupperneq 42
40 MENNTAMÁL aðrar ástæður leyfa. Er þar hægt að koma að margs konar tilbreytni, sem gerir námið léttara og meira aðlaðandi. Margt þess háttar má framreiða þannig, að það veki hug- kvæmni og smekkvisi barnanna, og flest, sem gerir þau sjálf virkari aðila í starfinu en áður, er þeim venjulega kærkomið. Þau hafa ánægju af að glíma við að leysa hæfi- lega þung verkefni og beita við það óskiptri orku sinni, þótt þeim hins vegar hætti til að leggja árar í bát, ef þau finna til fullkomins vanmáttar gagnvart verkefninu. En þetta starfssvið víkkar þó alveg sérstaklega, þegar barnið er komið á það stig, að hafa tileinkað sér algengasta orðaforðann. Þá ætti að vinnast tími til að taka til með- ferðar nauðsynleg atriði úr málfræði og setningafræði, sem ekki voru tekin með á byrjunarstiginu, eftir því sem allar ástæður leyfðu. Með hliðsjón af því, sem nú hefur verið drepið á, þykir rétt að benda á nokkur höfuðatriði, sem nú bíða úrlausna og eru beint framhald framangreindrar rannsóknar. Eru þau sérstaklega miðuð við stafsetningarkennsluna, þó að aðrir þættir móðurmálsins hljóti óhjákvæmilega að grípa þar að meira eða minna leyti inn í. Atriðin eru þessi: 1. Unnið verði að framhaldsrannsókn á tíðni orða, þar til sæmilega öruggar niðurstöður hafa fengizt. 2. Algengustu orðmyndirnar, sem fundnar eru á þennan hátt, verði prófaðar á hópi barna, til þess að komast að raun um, hverjar þeirra reynist auðvelt og hverjar erfitt að stafsetja. Eftir því mætti svo skipta þeim í flokka (orðalista), sem miðaðir væru við aldur og þroskastig barnanna. 3. Gefið verði út handhægt orðakver, er börnunum sé kennt að finna í vandrituð orð, sem ekki eru á orða- listunum. Þar sem það hlyti óhjákvæmilega að taka allangan tíma að bíða eftir niðurstöðum framhaldsrannsókna í þessum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.