Menntamál - 01.06.1940, Page 45
MENNTAMÁL
43
Agi í skólum.
i
(Brot úr fyrirlestri leikfimisnámsstjóra, frk Else Thomsen).
Lauslega þýtt.
M o 11 ó : Sól himinsins er oss fyrirmynd og kennari um
agann. Hún veitir hverri vaxandi veru hita og ljós, oft regn
og storm, en sjaldan þrumur og eldingar. Comenius.
Nauðsyn á góðum aga í skólum er óumdeilanleg. Má
einu gilda hvort litið er á það frá hliö kennslunnar, upp-
eldisins, þjóðfélagsins eða hið siðræna lífs. Engin vinna
án íhugunar og fyrirhafnar, engin áunninn dugnaður án
áhuga og kostgæfni (Koncentration), ekkert skapgerðar-
uppeldi án hlýðni, sjálfsaga og skyldurækni.
En hinn gamli harðhenti agi dugar ekki við börn nú-
tímans. Hann hefir sennilega aldrei haft happasæl upp-
eldisáhrif, jafnvel þótt hann hafi veitt vinnufrið. Hann
gerir börnin súr á svip og dauf í dálk og vinnutreg, en
takmarkið er vitanlega hið gagnstæða.
Ympra má á nokkrum atriðum þeirrar vinnutækni, sem
að vísu krefur mikils af kennaranum, en gefur ríkulega
uppskeru.
Hafðu hvert barn og hvern hlut á sínum stað, og leið-
réttu samstundis hve'rja skekkju og hvert mistak. Heimt-
aðu reglu í smáu og stóru, og kappkostaðu að haga starfinu
þannig, að fjarlægð séu sem mest öll tækifæri til óreglu.
Farðu aldrei frá börnum í kennslustund, nema að þú vitir
það að aginn sé svo öruggur, að þau geti haft gott af því
að vera ein um stund. Leyfðu barni aldrei að svíkjast um,
hvorki í smáu né stóru, og ekki geyma til morguns, það sem
gera átti í dag. Heimtaðu aldrei neitt, sem þú ekki gengur
eftir, og settu ekki reglur til að brjóta. Og gættu þess, að
sérhver fyrirskipun og áminning sé ákveðin, en þó laus
við hryssingsskap og gremju.