Menntamál - 01.06.1940, Page 49

Menntamál - 01.06.1940, Page 49
MENNTAMÁL 47 Mr. Howard B. Little. Fyrir mörgum árum sátu bræður tveir í Lundúnum og virtu fyrir sér Evrópu- kortið. — Þeir áttu fyrir höndum stutt sumarleyfi og var annt um að verja þvi vel. Eyja norður við íshaf vakti athygli þeirra. Förin var ráðin, og innan skamms stigu þeir á land í Reykjavík. Hin stutta sumardvöl varð' örlagaríkari fyrir yngri bróðurinn, Mr. Ho- ward B. Little, en hann grunaði, þegar hann at- hugaði landabréfið í Lund- únum. Land og þjóð hafði þau áhrif á þenna útlend- ing, að hann einsetti sér að koma hingað aftur til lengri dvalar. Framkvæmd þeirrar ákvörðunar drógst að vísu nokkuð, en þó kom þar, að Mr. Little steig hér á land að' nýju, ásamt konu sinni, staðráðinn í að dvelja hér tvö ár. Að þeim tíma liðnum kom þeim hjónunum saman um, að þeim hefði liðið hér vel, og enn væri ekki kominn tími til heimferðar. Síðan hafa árin liðið — fimmtán alls. Allan tímann hefir Mr. Little stundað enskukennslu í Reykjavík og auk þess aðstoðað menn í margskonar við- skiptum við enskumælandi þjóðir. Nemendur hans skipta orðið hundruðum. Móðurmál sitt talar Mr. Little þannig,

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.