Menntamál - 01.06.1940, Blaðsíða 50
48
MENNTAMÁL
að þótt menn hafi í því litla kunnáttu, veitist auðvelt að
skilja hann. Hann talar hægt og hagar orðavali við hæfi
nemenda sinna. Kennslustundir hans eru ekki aðeins fræð-
andi um enska tungu, heldur jafnframt um enskt þjóðlíf
og menningu.
Margir einstaklingar hér á landi bera hlýjan hug til Mr.
Little og finnst þeir eiga honum ýmislegt að þakka. En
þjóðarheildin stendur einnig í þakklætisskuld við þenna
mann. Um fimmtán ára skeiö hefir hann verið ótrauður
í því að fræða landa sína um ísland og menningu þess.
Þetta starf hefir krafizt persónulegra fórna, sem ekki hefði
að óreyndu mátt vænta af útlendingi. Þegar Mr. Little
kom hingað fyrst, hafði hann starfað við enska stórblaðið
Times og gerðist fréttaritari þess hér. Gaf það góðar tekjur.
En þegar Times eitt sinn birti grein um ísland, fulla af
rangfærslum og nokkurri illkvittni, mótmælti Mr. Little
sem kunnugur maður og óskaði leiðréttingar. Blaðið kaus
hins vegar heldur að fylgja þeirri reglu, sem flestir blað-
lesendur kannast við: Að hafa það eitt fyrir satt, er það
sjálft hafði birt. Leiddi þetta til misklíðar, og lét Mr. Little
af störfum fyrir blaðið.
Vegna áhuga síns fyrir útbreiðslu réttra upplýsinga um
ísland, hefur Mr. Little í fleiri tilfellum átt að velja milli
peninganna og trúmennsku við það, sem hann vissi sannast
og réttast. Val hans hefir jafnan verið óeigingjarnt.
Mr. Little fylgist vel með því, sem ritað er á enska tungu
um ísland og er jafnan reiðubúinn að leiðrétta mishermi
og rangfærslur í því efni, enda hefur hann vegna lang-
dvalar hér meiri þekkingu á íslenzkum málefnum en flestir
útlendir menn. Hann hefur m. a. gagnrýnt í erlendum blöö-
um bók, sem nokkuð þekkt, enskt ljóðskáld, Mr. Auden,
hefir ritað um ísland. Bók þessi kom út fyrir fáum árum og
var mikið lesin í Englandi. í henni eru ýmsar fjarstæður.
Mr. Little er nú aldurhniginn maður, fullra 68 ára. „í
vöggunnar landi skal varðinn standa," segir Einar Bene-