Menntamál - 01.09.1945, Blaðsíða 10
120
MENNTAMÁL
SKÚLI ÞORSTEINSSON
skólastjóri á Eskifirði segir í minningargrein, sem hann
hefur sent Menntamálum:
„Um nokkurra ára skeið var ég kennari við þann skóla,
er Sigurður veitti forstöðu, og naut þá ráða hans og vin-
semdar. Tel ég mér það happ mikið, og því meira, sem
ævin líður.
Aldrei mun ég gleyma þeim móttökum, sem ég átti að
fagna, er ég, fátækur nemandi í Kennaraskólanum, leitaði
hjálpar hans og ráða. Þá fékk ég að reyna, hvern mann
hann átti að geyma. Ég hef átt þá ósk síðan að mega
sjálfur einhvern tíma á ævinni reynast slíkur sem hann þá.
Á yngri árum var Sigurður áhugasamur ungmenna-
félagi. Hann var einn aðalhvatamaður að stofnun U. M. F.
Neista á Djúpavogi. Fylgdist hann alltaf vel með starf-
semi ungmennafélaganna og unni þeim. Sigurður var
fyrirmynd góðs ungmennafélaga, prúðmenni hið mesta,
reglusamur með ágætum, svipmikill og fastur fyrir, en
hlýr í viðmóti, góður vinur vina sinna og kunni einnig
vel að meta þá, er honum voru andstæðir í skoðunum.
Ungum mönnum var gott að vera með Sigurði. Bjartsýni
og trú á lífið og manninn sjálfan gerðu umhverfi hans
heillandi og hlýtt. Hann átti eld hið innra og sólarsýn.
Hann var vormaður sinnar þjóðar, vormaður í hugsun
og starfi.“
ÁRMANN HALLDÓRSSON,
skólastjóri og sérfræðingur í uppeldisfræði og barna-
sálarfræði, kemst þannig að orði í Alþýðublaðinu:
„Sigurður Thorlacius lagði nokkra stund á ritstörf. Eftir
hann eru til tvær barnabækur: Sumardagar og Um loftin
blá. Að mínum dómi eru það mjög merkar bækur, sem
ættu skilið, að þeim væri miklu meiri gaumur gefinn. Bera