Menntamál - 01.09.1945, Síða 17

Menntamál - 01.09.1945, Síða 17
MENNTAMÁL 127 í Reykjavík, sem þá var nýstofnaður, og gegndi því til dauðadags, hinn 17. þ. m. (þ. e. ágúst). Varð nokkur styr um þá embættisveitingu, því hinn nýi skólastjóri var þá óþekktur maður, en starfið erfitt og umfangsmikið. Það kom þó von bráðar í ljós, að Sigurður var þeim vanda vaxinn, vegna mannvits, menntunar og mannkosta. Vér kennarar fundum fljótt, að hér hafði oss bætzt ágætur liðsmaður. Hann flutti með sér hressandi blæ nýrrar þekk- ingar og nýrra strauma í uppeldismálum og gerðist einn helzti forvígismaður hinnar nýju skólastefnu, sem þá var að ryðja sér til rúms erlendis. Stefna sú felst einkum í því, að einstaklingseðli barnanna fái að njóta sín sem bezt, að þau megi vera frjáls og óþvinguð við störf sín, innan skóla og utan. Kennarar verði leiðbeinendur og vinir, en ekki eingöngu valdbjóðandi yfirmenn. Skólarnir verði leystir úr aldagömlum viðjum ítroðnings og yfirheyrslu, en nemendur laðaðir til sjálfstæðrar athugunar á náms- efninu. Afleiðingin verður meiri starfsgleði, víðsýni og frelsi. Sigurður var kvæntur Áslaugu Kristjánsdóttur, Jóns- sonar, frá Fremsta-Felli í Kinn, gáfaðri og mikilhæfri konu. Börn þeirra eru 5, á aldrinum 3—13 ára. Heimilis- líf og sambúð þeirra hjóna var eitt hið fegursta, er ég hef kynnzt. Aldrei sá ég Sigurð jafnglaðan og meðal barna sinna, er hann dvaldi hjá þeim að dagsverki loknu. Hann fylgdist og með þroska þeirra af meiri alúð og nákvæmni en ég veit dæmi til. — Húsfreyjan var honum örugg stoð og stjórnaði heimilinu með mjúkum og mildum höndum, hvort sem húsbóndinn var við daglegu störfin eða bundinn við sjúkrabeð, eins og fyrir kom fyrstu hjúskaparár þeirra. Allir þeir, sem Sigurður Thorlacius vann fyrir, standa því í þakklætisskuld við konu hans. Hann afkastaði óvenjulega miklu starfi á fáum árum, m. a. vegna þess, að hann átti ágæta konu. Því megum vér, vinir hans og vel-

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.