Menntamál - 01.09.1945, Síða 26
136
MENNTAMÁL
Þorsteinn M. Jónsson sextugur
Sé farið yfir þann þátt skólasögu okkar, sem tekur
til löggjafar á alþingi, hlýtur lesandinn að staldra við
nöfn og athafnir nokkurra einstakra manna, sem þar
hafa unnið öðrum meira og happadrýgra starf. Einn
þeirra manna er Þorsteinn
M. Jónsson, skólastjóri
gagnfræðaskólans á Akur-
eyri.
Þorsteinn var þingmað-
ur Norðmýlinga, þegar
lögin um skipun og laun
barnakennara voru sam-
þykkt á alþingi 1919. Hann
var þá skólastjóri við
barnaskólann í Bakkagerði
í Borgarfirði eystra og
veitti jafnframt kaupfé-
lagi þar forstöðu. Hann
var maður á léttasta skeiði,
fæddur 20. ágúst 1885 á
Útnyrðingsstöðum í Valla-
hrepp í S.-Múlasýslu, sonur hjónanna þar, Jóns Ólasonar
og Vilborgar Þorsteinsdóttur. Hann hafði tekið kennara-
próf 1909 og gerzt sama ár skólastjóri í Bakkagerði, en
áður hafði hann starfað að barnakennslu á Akureyri og
Seyðisfirði. Hann hafði orð á sér fyrir atorku og ger-
hygli og hafði verið kjörinn þingmaður 1916 og þótti
nýtur maður í því starfi, var t. d. kosinn í samninga-
nefndina við Dani 1918.
Frumvarpið um skipun og laun barnakennara fól í sér