Menntamál - 01.09.1945, Síða 38

Menntamál - 01.09.1945, Síða 38
148 MENNTAMÁL Fundurinn samþykkti ýmsar tillögur, og eru þessar helztar: a) Að tekin sé upp kennsla í hagnýtri uppeldisfræði við alla kvenna- og húsmæðraskóla í landinu. b) Að aukin sé fræðsla almennings um uppeldisfræðileg efni með útvarpsfyrirlestrum og rituðu máli í heppilegu formi. c) Gerð sé nú þegar gangskör að því að ákveða takmörk skóla- hverfa strjálbýlisins, með það fyrir augum, að skólaheimili rísi þar upp, er hvert þeirra gefi verkefni tveim kennurum. d) Að ríkið greiði a. m. k. tvo þriðju hluta af stofnkostnaði hvers skólaheimilis. e) Til þess að gera þessar framkvæmdir auðveldari og ódýrari og losna við margs konar árekstra, skipi fræðslumálastjórnin fram- kvæmdaráð verkfróðra og skólafróðra manna, sem ákveði í santráði við skólanefndir skólastaði og annað, er að því lýtur, og láti svo byggja 2—3 skóla á ári í næstu 20 ár. f) Að fræðslumálastjórn leggi fyrir skólanefndir bæja og þorpa að gera ásamt skólastjóra og námsstjóra lillögur um nauðsynlegar um- bætur á uppeldislegum skilyrðum bæjarins eða þorpsins, og séu þær tillögur sendar henni og sjái liún svo um, að þær, er samþykki hennar hljóta, verði framkvæmdar svo fljótt, sem ástæður leyfa. g) Námsstjórum sé fjölgað í sex og þeim gefið meira vald til ýmiss konar frantkvæmda og umbóta en þeir ltafa nú. h) Þar sem nú er svo komið, að flest börn fá eitthvert framhalds- nám, lækki prófkröfur í almennum lesgreinum við fullnaðarpróf frá því, sem verið hefur. Sé Jteim tíma, sem Jtannig sparast við minni yfirferð lesgreinanna, varið til að styrkja nárnið í móðurmáli og reikningi. i) Að lokum vill fundurinn láta Jtá eindregnu skoðun í ljós, að Jtað sé þjóð vorri hin mesta nauðsyn, að heimili, skóli og kirkja taki Iiöndum saman um það göfuga hlutverk að efla með uppvaxandi æsku Jtessa lands kristilega lífsskoðun, auka viðnám hennar gegn dáðleysi og óhollu nautnalífi og glæða skilning hennar á andlegum og siðlegum verðmætum. Þá lagði fundurinn á Jtað ríka áherzlu, að samvinna ykist milli presta og kennara í kristindóms- og uppeldismálum. Hann skoraði einnig á [nng og stjórn að láta lögin um héraðahönn koma strax til framkvæmda, svo að unnt væri að sporna helur en nú er við áfengisnautn Jtjóðarinnar, en hún væri nú svo mikil, að til voða horfði. Einnig væri hverjum uppaldanda skyll að vinna að dýra- verndunarmálinu. Fundarmenn voru 2—3 nætur á Hólum og létu hið bezta yfir veru sinni Jtar. Jón Þ. Björnsson, skólastjóri, á Sauðárkrók, hafði séð um

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.