Menntamál - 01.03.1953, Blaðsíða 7
MENNTAMÁL.
XXVI. 1.
JANÚAR—MARZ.
1953.
John Dewey
1859-1952
Á síðast liðnu ári létust
tveir áhrifamestu uppeldis-
frömuðir vorra tíma,
María Montessori, 81 árs
að aldri, og John Dewey á
tíræðisaldri. Frú Valborg
Sigurðardóttir ritaði á-
gæta grein um Montessori í
Menntamál skömmu eftir
lát hennar, en dregizt hef-
ur úr hömlu að minnast
Dewey. Verður nú reynt
að bæta lítillega fyrir þá
vanrækslu.
John Dewey var Banda-
ríkjamaður, fæddur 1859
á Nýja Englandi, því fylki
Bandaríkjanna, sem ensk-
ast er talið. Þar náði frjálslynda stefnan, líberalisminn,
hvað bezt að festa rætur, enda er blessun frelsisins uppi-
staðan í boðskap Dewey. Bertrand Russell lýsir honum á
þann veg, að hann hafi verið gull af manni, hvers manns
hugljúfi, frjálslyndur í skoðunum og óþreytandi eljumað-
ur. Þetta er ekki líkræðuskrum. Það var ritað mörgum
árum fyrir dauða Dewey. Voru þeir Russell og hann þó
síður en svo sama sinnis í heimspekilegum efnum, og
skilst mér á orðum Russells, að þeir hafi átt í ritdeilum.
John Dewey.