Menntamál - 01.03.1953, Blaðsíða 32

Menntamál - 01.03.1953, Blaðsíða 32
26 MENNTAMÁL veldara sé að fá nemendur til að ganga vel um vandaðar skólastofur. Enn fremur sé ólíku saman að jafna um klæðaburð fyrr og nú. Börn komi yfirleitt snyrtilega til fara í skóla og vel búin til fóta. Er það vafalaust mest að þakka bættum efnahag, en einnig vaxandi þrifnaði og auknum skilningi á hollustuháttum. Eitt nauðsynjatæki, sem talið var í okkar ungdæmi, kveður hann horfið úr öll- um skólastofum. Það er hrákadallurinn. Nú virðist hans ekki þörf lengur, hvað sem veldur. Verður okkur báðum að kíma, þegar við minnumst þeirra tíðu ferða, sem við og sambekkingar okkar áttum í hornið, þar sem hann stóð. En skólalífið á nú í þess stað upp á ýmsa aðra tilbreytni að bjóða. Nú eru haldnar skemmtanir í flestum skólum tvisvar eða oftar á vetri. Hefur sú stefna rutt sér til rúms hin síðari ár að láta sem flest eða helzt öll börnin eiga þátt í undirbúningi og koma fram á þessum skemmtunum. Hefur skólastjóri og kennarar á Eyrarbakka og Hafnarfjarðarkennarar einkum haft forystu í þessum efnum. Námsstjóri sýndi mér einnig fjölritaða skemmti- skrá úr skóla austur á Síðu. Nefndist hún Landið mitt. Var þar fjallað um ýmislegt, er ísland varðar, og tekinn kafli úr einhverju ættjarðarljóði, eftir því sem við átti. Las hvert barn sinn kafla. Var þetta snoturlega saman sett. Margt skólabarna er í stúkum, skátafélögum og ung- mennafélögum. Enn fremur tíðkast nokkuð, að haldnir séu málfundir í skólunum og jafnvel gefin út blöð. I heimavistarskólum eru hafðar kvöldvökur og þá lesin framhaldssaga og sitthvað fleira sér til gamans gert. Tekjum af skólaskemmtunum er jafnan varið til ferða- laga. Venjulega er farin eins dags ferð um nágrennið, er skóla lýkur að vorinu, þó er stundum gist. Enn fremur er ferðinni stundum heitið til Reykjavíkur, þar skoðuð söfn og farið í Þjóðleikhúsið, ef kostur er.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.