Menntamál - 01.03.1953, Blaðsíða 38

Menntamál - 01.03.1953, Blaðsíða 38
32 MENNTAMÁL og halda sig við það, hvað hægt er að gera að óbreyttum þeim aðstæðum, þá verður það helzt þetta: 1. Síðari vetur unglinganámsins skal lengja starfstímann um a. m. k. einn mánuð fyrir þá nemendur, sem hyggja á landspróf. Víða er þetta hægt án miklis eða nokkurs kostnaðar, þar sem víða hagar svo til, að sömu menn annast kennslu í unglingadeildum og barnaskóla, en smábarnaskólar standa víða mánuði lengur en kennsla eldri nemenda og þann tíma hafa margir kennarar ekki fullan starfstíma. 2. Samræma þarf allar kennslubækur í skólum unglinga- stigsins og öðrum framhaldsskólum. 3. Leggja þarf ríkari áherzlu á kennslu í tungumálum og reikningi í unglingadeildunum og fjölga tímum í þeim námsgreinum. 4. Komið gæti til greina, að landsprófsnemendur fengju lítils háttar viðbótarkennslu 3. veturinn heima í unglinga- skóla sínum í reikningi, móðurmáli, útlendum tungumál- um og eðlisfræði og færu á næsta vetri í landsprófsdeild mið- eða gagnfræðaskóla. ólafsfirði, 20. febr. 1953. Sigursteinn Magnússon.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.