Menntamál - 01.03.1953, Page 16

Menntamál - 01.03.1953, Page 16
10 MENNTAMÁL gjarnar, en hvað sem því líður, er það staðreynd, að fá störf reyna meir á lipurð, skapstillingu og andlegt jafnvægi. 1 flesum löndum starfa nú svo nefndir skólasálfræðing- ar. Aðalhlutverk þeirra er að reyna að hjálpa þeim börn- um, sem eru á einhvern hátt afbrigðileg. Nær þessi hjálp ekki einungis til námsins, heldur og til hegðunar, félags- legrar aðlögunar og hvers konar örðugleika, sem barnið á við að stríða. Markmið slíkrar leiðbeiningastarfsemi er sem sagt ekki eingöngu það að bæta námsárangurinn, heldur og að bæta andlega líðan barnsins og hegðun. Ekki er að efa, að þessi aðstoð kemur oft að góðu gagni. En skólasálfræðingar hafa ekki eingöngu það hlutverk að hjálpa nemendum, heldur og að verða kennurum að liði við alls konar vandamál, sem varða störf þeirra beint og óbeint. 1 Evrópu hefur geðvernd kennara verið tiltölulega lítið sinnt, það er aðallega í Bandaríkjunum, sem rannsóknir hafa verið gerðar um þetta efni, fylgzt hefur verið með geðheilsu kennara og reynt að ráða bót á henni, þar sem henni er áfátt. Mjög gallaður kennari hefur ákaflega óheppileg áhrif á þau börn, sem hann kennir og umgengst. Þessir gallar eru ekki nærri alltaf í því fólgnir, að kennar- inn sé illa að sér, svíkist um að kenna, skrópi mikið frá kennslu eða sé jafnvel lélegur kennari í sjálfu sér, held- ur eru skapgerðargallar miklu tíðari, svo sem vanstill- ing og óheppileg framkoma gagnvart börnunum. Mikið veltur hér á skólastjórunum, að þeir séu vel menntaðir hæfileikamenn, sem leggja fyllstu alúð við starf sitt, þekkja kennaralið sitt vel, og séu færir um að leiðbeina því. Ann- ars eru skólastjórar vant við komnir að ýmsu leyti, því að þeir eiga mjög óhægt um að koma af sér lélegum kenn- urum, og oft er mikill hörgull á kennurum, og eru þá stundum lítt hæfir kennarar kvaddir til starfs. Bandaríkjamenn hafa um alllangt skeið gefið geð- vernd kennara náinn gaum og gert fjölmargar athuganir

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.