Menntamál - 01.03.1953, Page 29
MENNTAMÁL
23
Barnaskólinn á Stokkseyri. Tekinn i notkun 1950.
læst barn eigi auðveldara um nám í lesgreinum og skriftin
geri þeim hægara um vik að læra stafsetningu. Ég spyr
hann enn fremur um skólaþreytuna margumtöluðu. Hann
kveðst verða hennar undarlega lítið var, nema þá helzt
að vorinu, þegar vel viðraði. Þá dragi útivistin og við-
fangsefni utan veggja skólans að sér hugi barnanna. Og
sé það ekki nema gott og heilbrigt. Hann telur það illa
farið, þegar það dregst langt fram á haust eða vetur, að
skólar geti tekið til starfa vegna viðgerða á húsum eða
annars undirbúnings. Afleiðingin verði sú, að skólahald
sé teygt fram á vor miklu lengur en annars væri þörf, ef
skólar hæfu starf á eðlilegum tíma.
Deildaskipting.
í stærstu skólunum fer deildaskipting eftir aldursflokk-
um, og sums staðar er aldursflokki skipt í margar deildir.
— í tví- eða þrímenningsskólum er barnaskólinn oftast