Menntamál - 01.03.1953, Side 30
24
MENNTAMÁL
nær 3 eða 4 deildir, þannig að 7 og 8 ára börn eru saman
í deild, 9—10 ára saman og 11 og 12 ára. — I heimavistar-
skólum eru eldri börnin að jafnaði í tveimur deildum, 10
og 11 ára saman og 12 og 13 ára. Sækir þá ekki nema önn-
ur deildin skóla í einu, annað hvort sinn hálfan mánuð
hvor deild eða þrjár vikur eða jafnvel mánuð. I heima-
vistarskólahverfum, þar sem börn yngri en 10 ára eru
tekin í skóla, er þeim jafnan ætlaður einn mánuður á ári,
hálfur mánuður að hausti og hálfur að vori. Auk þessa
eru yngri börnin stundum kölluð til prófa í skólann ein-
hvern tíma að vetrinum. — í einmenningsskólum öðrum
koma yngri börnin oft haust og vor á móti annarri eldri
deildinni. Um miðbik vetrarins koma síðan eldri deild-
irnar sinn daginn hvor. Yngri börnin koma öðru hverju
til prófa.
Hvern veg gefst þetta fyrirkomulag að láta börnin koma
annan hvern dag eða deildir sinn hálfan mánuð hvora?
„Það er algerlega komið undir samvinnunni við heimilin,"
segir námsstjóri. „En þeirrar tilhneigingar gætir engu
síður í dreifbýli en bæjum, að menn vilji varpa sínum
áhyggjum upp á skólana, að því er varðar nám barna.
Má það kallast eðlilegt, þar eð mikill skortur er á vinnu-
krafti á heimilum þar alveg eins og í bæjum.“ — Vart hefur
orðið þess misskilnings, að fólk telji sveitabörnum litla
þörf á skólanámi. Sveitalífið sé svo heilnæmt, að það geti
komið þeim í þess stað. Því miður kemur mörgum þessi
skoðun í koll. Sveitafólki er þörf á almennri menntun
jafnt sem öðrum þegnum í nútíma þjóðfélagi bæði til
þess að fylgjast með og eiga þátt í því, sem kringum það
gerist, sem og til þess að tileinka sér vinnubrögð eins og
þau nú tíðkast.“
K ennsluaðferðir.
íslenzkir kennarar eru mjög frjálsir að því, hvaða að-
ferðum þeir beita. Telur Bjarni það sérstaklega æskilegt,