Menntamál - 01.10.1953, Blaðsíða 52
118
MENNTAMÁL
Frá 4. fulltrúaþingi Landssambands
framhaldsskólakennara.
ÁLYKTANIR
1. Skólaútvarp.
Fulltrúaþingið skorar á stjórn útvarpsins og fræðslumálastjóra að
afla glöggra upplýsinga um skólaútvarp á Norðurlöndum, Bretlandi
og víðar og hefja sfðan slíka starfsemi hér svo fljótt sem við verSur
komiS.
2. Námskeið.
Fulltrúaþingið telur hrýna nauðsyn, að árlega séu haldin námskeið
fyrir framhaldsskólakennara, svo að þeir geti þann veg aukið menntun
sína og fylgzt með nýjungum í kennslugreinum. hingið bendir á vin-
sældir þeirra námskeiða, sent L. S. F. K. hefur gengizt fyrir, og
skorar því á fræðslumálastjórn að beita sér fyrir því, að styrkur til
kennaranámskeiða verði stóraukinn frá jtví sem vcrið hefur.
3. Lesstofur.
Fulltrúaþingið telur nauðsynlegt, að nemendur framhaldsskóla eigi
jafnan aðgang að hentugri lesstofu í skóla sínum nokkurn tíma dag
hvern, þar sem kennari sé til eftirlits og leiðbeiningar.
4. Kennsluteeki.
Þingið telur algera óhæfu að nauðsynleg kennslutæki, svo sem
hljóðfæri, sýningarvélar, segulbandstæki, fjölritarar o. þ. u. 1. verði
að greiðast á bátagjaldeyrisgrundvelli og af þcim séu greiddir háir
tollar.
Þingið skorar á alla aðila, sem liér eiga hlut að máli, að fá þessu
breytt f viðunandi liorf.
Þingið felur stjórn sambandsins að athuga, livort ckki sé heppi-
legt, að Innkaupastofnun ríkisins annist innkaup á þessum tækjum.
5. Háttvisi.
Lögð sé meiri áherzla en nú er gert á hina uppeldislegu hlið skóla-
starfsins, prúðmannlega framkomu og reglusemi nemenda.
I því sambandi skorar jjingið á fræðslumálastjórnina að lilutast