Menntamál - 01.10.1953, Blaðsíða 35

Menntamál - 01.10.1953, Blaðsíða 35
MENNTAMÁL 101 Hún rétti mjög latinubækur, svo að hún lét lesa fyrir sér, en hún sjálf saumaði, tefldi eða vann aðrar hann- yrðir með heilagra manna sögum, kynnandi mönnum guðs dýrð eigi aðeins með orðum munnnáms, heldur og með verkum handanna.“ En enda þótt fræðslulögin hafi stuðlað að aukinni fjölbreytni í námstilhögun, er það óefað enn þá ein mesta veila í íslenzkum skólamálum, hve viðfangsefni og vinnu- aðferðir eru lítt miðaðar við eðli og þarfir einstaklinga. SKÓLAKERFI. LANDSPRÓF MIÐSICÓLA. Með fræðslulögunum var komið á miklu nánara sam- bandi og samstarfi með einstökum skólum og skólaflokk- um en áður var, enda voru það skýlaus fyrirmæli frá Alþingi og menntamálaráðherra til milliþinganefndar í skólamálum, að starf skólanna yrði samræmt. Verður því varla á móti mælt, að nauðsyn hafi borið til nokkurrar samræmingar. Fyrir hitt ber ekki að synja, að í of mikilli samræmingu er fólgin nokkur hætta, sem síðar skal lýst. Hefur hún að minni hyggju einkum gert vart við sig að einu leyti. Á ég þar við landspróf miðskóla. Ákvæði um, að slíkt próf skuli haldið, er að finna í lögunum, en lítið sem ekkert þar fram yfir. Mælt er að öllu leyti fyrir um tilhögun þess í reglugerð, og sérstök nefnd annast fram- kvæmdir. Við lögin er því ekkert að sakast annað en það, hvort slíkt próf skuli haldið eða ekki. Líklegt er, að landspróf verði seint framkvæmd svo, að ekki verði fundnir á þeim meinlegir gallar frá sjónar- miði skólamanna, enda eru það um fram allt þjóðfélags- legar ástæður, sem liggja þeim til grundvallar. Ágallar landsprófa eru einkum í því fólgnir, að mikil hætta er á því, jafnvel svo að vart verður við ráðið, að kennsla undir þau verði að verulegu leyti ópersónuleg og vélræn. Þær kröfur, sem kennarinn verður að beygja sig undir, eru svo hnitmiðaðar og strangar, að frjálsræði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.