Menntamál


Menntamál - 01.12.1956, Side 63

Menntamál - 01.12.1956, Side 63
MENNTAMAL 189 félagslegur og tilfinningalegur mismunur hafi í þeim efnum. 7. Rannsóknir á vandamálum í sambandi við börn, sem ná ekki prófi. í Danmörku tíðkast það töluvert, að börn, sem ná ekki tilskilinni lágmarkseinkunn séu látin sitja eftir í bekk, og skapast af því ýmis vandamál, er liggja mörgum kennur- um þungt á herðum. Þessum rannsóknum er ætlað að ná til alls, sem máli skiptir í þessu sambandi, svo sem í hve ríkum mæli börn séu látin sitja eftir í hinum ýmsum teg- undum barnaskólanna, hverjar séu orsakir þess og hverj- ar afleiðingar bæði með hliðsjón af námsárangri og líðan barnanna í heild. 8. Rannsóknir á sambandinu milli vinnuhraða og villu- fjölda. I þeim íslenzku skólum, sem ég hef haft kynni af, hefur jafnan verið lögð meiri áherzla á vandvirkni en hraða, enda mun það margra skoðun, að ekki borgi sig að flýta sér við verk, sem maður kann ekki vel. Að vísu er nokkuð litið á hraða á prófum í lestri, en í öðrum námsgreinum er tími jafnan mjög ríflega áætlaður, a. m. k. í barnaskólum og ekkert skeytt um, hvort hann er notaður allur eða aðeins nokkur hluti hans og einkunnin aðeins miðuð við rétt leyst verkefni, án tillits til fjölda þeirra, sem barnið hefur glímt við. Börn, sem t. d. lesa mikið með fáum villum, eru auðvit- að duglegust og þau, sem lesa lítið með mörgum villum auðvitað lökust, en það getur orkað tvímælis, hvernig eigi að skipa þeim niður, sem lesa lítið með fáum villum og þeim er lesa hratt með mörgum villum, ef tími er jafnlang- ur. Rannsóknunum er ætlað að varpa ljósi yfir þetta og væntanlega ýmislegt annað í sambandi við vinnuhraða og vinnugæði.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.