Menntamál - 01.12.1956, Page 69
MENNTAMAL
195
deild hans verði svo hægt að fara í 2 ára gagnfræðaskóla
eða 4 ára menntaskóla. Þetta frumvarp setur skólaskyld-
una 8 ár, hin tvö 7 ár. Umræðum þingsins lauk með því,
að skipuð var nefnd til að vinna úr tillögunum.
Þar sem nú standa yfir og standa til miklar framkvæmd-
ir í skólabyggingum, sem kosta munu ríkið of fjár, er unnið
að því að skipuleggja á sem haganlegastan hátt stærð
skóla og skólahéraða. Við athuganir í einu amti, Holbæk,
hefur komið í ljós, að þar er hægt með skipulagningu og
hagsýni að spara 8—10 miljónir frá áætluðum byggingar-
kostnaði.
Þrátt fyrir miklar byggingar er samt skortur á skólahús-
næði, bæði í bæjum og sveitum. Hinir fjölmennu árgangar
eru nú að ná til menntaskólanna, og þarf að stækka þá um
40 % á næstu 8 árum, þó að hlutfallstala menntaskólanema
hækki ekki frá því, sem nú er.
Á árinu komu til framkvæmda lög frá 1954 um ókeypis
skólavörur í framhaldsskólum. Fjárveitinganefnd hefur
samþykkt að veita einkaskólum styrk til þess að hægt sé að
veita nemendum þeirra aðstoð við bókakaup og lækka skóla-
gjöld.
Árið 1955 gengu einnig í gildi ný lög um kennaramennt-
un, og voru ýmsar reglugerðir þar að lútandi settar á árinu.
1953 voru samþykkt lög um leiðbeiningar um stöðuval
í skólum. Fulltrúar frá skólum, atvinnulífi og vinnumiðl-
un hafa unnið að skipulagningu starfseminnar, sem nú er
að hefjast.
Uppeldisfræðileg rannsóknarstofnun hefur tekið til
starfa í Emdrupborg, og prófessorembætti í uppeldisfræði
hefur verið stofnað við Kaupmannahafnarháskóla. Dr. phil.
Grue-Sörensen hefur tekið við því embætti.
Út er komin skýrsla um 6 fyrstu starfsár Emdrupborg-
skóla. Skólinn er tilrauna- og æfingaskóli, í nokkuð öðru
formi en aðrir barnaskólar, og skýrir skýrslan frá feng-
inni reynslu skólastjórans, frú Anne Marie Nörvig, og