Menntamál - 01.12.1956, Síða 86
212
MENNTAMÁL
enda þótt búið sé að setja eða skipa fjölmarga kennara í stöður. Enn
vantar í nokkrar stöður, þar sem enginn umsækjandi er kominn.
Þessir hafa verið settir skólastjórar við barnaskóla í kaupstöðum og
stærstu kauptúnum:
Sigurður Finnsson við Barnaskóla Vestmannaeyja. Tómas Jónsson,
skólastjóri að Þingeyri í Dýrafirði. Jón Kristinsson að Suðureyri í Súg-
andafirði. Hjörtur Guðmundsson að Drangsnesi í Steingrímsfirði.
Kristinn Jónsson að Grenivík í S.-Þing. Gunnar Benediktsson við
Barna- og miðskólann í Hveragerði, en fyrrv. skólastj. þar, Helgi
Geirsson, er settur kennari við Héraðsskólann að Laugarvatni þetta
skólaár.
Þessir skólastjórar hafa verið settir við framhaldsskóla:
Árni Guðmundsson við íþróttakennaraskóla íslands. Guðbrandur
Magnússon við Gagnfræðaskóla Siglufjarðar þetta skólaár, meðan
Jóhann Jóhannsson er í orlofi. Ragnar Georgsson við nýjan gagn-
fræðaskóla í Bústaðahverfi í Reykjavík. Ólafur H. Kristjánsson við
Héraðsskólann að Reykjum í Hrútafirði. Ólafur Þ. Kristjánsson, sem
skipaður hefur verið skólastjóri við Gagnfræðaskólann í Flensborg,
Hafnarfirði, í stað Benedikts Tómassonar.
Nánara yfirlit um stöðuveitingar verður hægt að gera síðar í mán-
uðinum. Væntanlega verður þá búið að setja menn í stöður þær,
sem enn eru óveittar.
V. Ný reglugerð.
Hinn 13. júlí s. 1. var sett ný regiugerð um rétt skóla til kennara
í hlutfalli við nemendafjölda. 1 sömu reglugerð er fyrirskipuð fram-
kvæmd á því að fækka kennslustundum fastra kennara við barna-,
gagnfræðastigs- og liúsmæðraskóla, þegar þeir verða 55 ára og svo aftur
við 60 ára aldur. Áður var jretta heimild og miðuð við 60 og 65 ár. Þessi
regla liefur það í för með sér, að ráða þarf í ár 15 nýja kennara að
barnaskólanum til viðbótar við þá, sem fyrir eru. Að gefnu tilefni skal
þess getið, að Jjetta ákvæði er selt til þess að létta starfi af kennurun-
um, en ekki til launabóta.
Nýir skólar:
Tveim farskólum, í Mosvalla- og Breiðdalsskólahverfum, var breytt í
heimavistarskóla á síðasta skólaári. Árni Stefánsson er skólastjóri í
Breiðdalnum, en óveitt er skólastjórastaðan í Mosvallaskólahverfi, að
Holti í Önundarfirði. Guðm. Ingi Kristjánsson, rithöfundur, gegndi
stöðunni s. 1. skólaár, en enginn kennari með kennaraprófi sótti um
hana. Búizt er við, að nýr skóli verði stofnaður að Kársnesi í Kópa-
vogskaupstað, og nýr gagnfræðaskóli tekur til slarfa í Reykjavík á
þessu hausti.