Menntamál - 01.08.1960, Side 15
MENNTAMÁL
109
ara í 7 ára bekkj um, kom engin rödd fram um að nota stöf-
unaraðferð við byrjendur. Ég hef því ástæðu til að ætla,
að hljóðaðferð sé nokkurn vegin ríkjandi hér í bæ. í skóla
ísaks Jónssonar er hún notuð sem grundvallaraðferð, og
þessi aðferð er lögð til grundvallar við kennsluæfingar í
lestrarkennslu í Kennaraskólanum.
Það hlýtur að fara mikið eftir byggingu viðkomandi
máls hvaða lestraraðferð er notuð í hinum ýmsu löndum.
í enskumælandi löndum hefur mikið verið notuð orðaað-
ferð. Fjöldi orða er stafsettur langt frá framburði, en orð-
in breytast minna eftir beygingum en í okkar máli. í
Svíþjóð er nær eingöngu notuð hljóðaðferð, en í Danmörku
er stöfunaraðferð ríkjandi. Danir nota þó hljóðaðferð sem
hjálparaðferð ásamt orðaaðferð, einkum með því að kenna
börnunum að þekkja algeng orð, sem ekki eru hljóðrétt
skrifuð. Flestir kennarar hér munu líka reyna að kenna
börnum að þekkja sem fyrst algeng smáorð. Eftir því sem
ritað mál nær framburði, er auðveldara að nota hljóðað-
ferð og þar er íslenzka áreiðanlega ekki verri en sænska.
Það sem ég hef nú sagt um lestraraðferðir á við um
byrjendur, en þau börn, sem eru byrjuð að lesa, þegar
þau koma í skólann, verða yfirleitt að halda þeirri að-
ferð, sem þau eru byrjuð með. En það er rétt að geta þess,
að engar raunhæfar athuganir hafa verið gerðar hér á
landi á lestrarkennslu og það sem sagt hefur verið og
skrifað um kosti og galla lestraraðferða eru fullyrðingar
móti fullyrðingum. En eitt er víst! Engin töfraaðferð er til,
sem gerir alla læsa á stuttum tíma. Það verður að vera
matsatriði hjá hverjum einstökum kennara, hvaða aðferð
hann notar, eftir því á hvaða stigi þau börn eru, sem hann
tekur við.
Bókakostur hefur verið lítill og óhentugur fyrir byrj-
endur. Eiginlega höfum við aðeins eina nothæfa byrjenda-
bók í lestri, Gagn og gaman, sem er ágæt bók, en hún
hefur hrokkið skammt. Lestrarbækurnar þyngjast alltof