Menntamál - 01.08.1960, Side 18
112
MENNTAMÁL
leitt verra með að læra reikning en lestur. Þau skilja ekki
talnagildin, og þá er oft hrein tilviljun, hvað þau skrifa.
Sú skoðun er mikið að ryðja sér til rúms og styðst við
athuganir í mörgum löndum, að algengt sé, að reiknings-
kennslan sé á undan þroska barnanna. Þau séu látin læra
reikningsaðferðir eða ýmis atriði þeirra of snemma og
byrjað sé á nýjum atriðum, áður en þau, sem fyrr skyldi
nema, séu fulllærð. Með því móti þurfi svo miklu lengri
tíma til reikningskennslunnar en annars þyrfti. Þetta
gildir ekki aðeins um yngri börn, heldur líka þau eldri.
Skriftin.
í skrift reynum við að kenna óbreytta stafi. Það er auð-
vitað langt frá, að þeir séu fullæfðir. Framan af vetri læt
ég börnin prenta. Prent má nota mikið í sambandi við
lestrarnámið, og á 1. vetri ná þau ekki þeirri þjálfun í
skrift, að þau eigi hægt með að skrifa t. d. texta, sem þau
lesa, eða með myndum, sem þau teikna. Prent er miklu
auðveldara og krefst minni vöðvaþroska en skrift. Ýmsar
hreyfingar úr prentinu má svo nota, þegar byrjað er á
skriftinni. Það er auðvitað mjög misjafnt, hvað börnin
hafa mikinn handstyrk og þjálfun í að nota blýant, þegar
þau koma í skóla. Þetta verður hver og einn kennari að
meta, þegar hann ákveður, hvenær hann byrjar á skrift.
Ég hygg, að flestir fari yfir stafina og kenni þá sem prent-
stafi, áður en þeir byrja á skrift. í skrift höfum við ekki
heimavinnu í 7 ára bekkjum. Ég skal til gamans geta þess,
að meðal þeirra, sem rannsakað hafa skrift og skriftar-
hreyfingar, eru uppi þær kenningar, að skrift eigi ekki að
byrja að kenna fyrr en á 3. skólaári. Skrift reyni á fín-
gerða vöðva og orsaki oft þreytu og jafnvel vöðvakrampa,
sem ekki hverfi, þegar nægur vöðvaþroski er fenginn. Ekki
munu kennarar telja sig geta beðið svo lengi með að kenna
skrift, en flestir munu hafa skriftaræfingar stuttar í byrj-
un, en taka þær oftar. Ég skal taka það fram, að ég fer